154. löggjafarþing — 68. fundur,  8. feb. 2024.

aðgerðir til að bæta stöðu á húsnæðismarkaði.

[10:35]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Forseti. Enn einu sinni vöknum við og lesum fréttir af eldgosi í Grindavík. Þriðja gosið á þremur mánuðum er áminning um að Grindvíkingum verður ekki óhætt á heimaslóðum í nánustu framtíð og fólk upplifir mikið öryggisleysi. Í dag geri ég ráð fyrir að samþykkt verði fjáraukalög með framlengingu á leigu- og launastuðningi við Grindvíkinga og fjárheimild til frekari íbúðakaupa á vegum Bríetar. Þá er mikilvægt að afgreiða fljótt rekstrarstuðning við fyrirtæki á svæðinu. Við bíðum enn eftir frumvarpi sem leysir Grindvíkinga úr viðjum verstu óvissunnar sem snýr að uppkaupum á húsnæði sem þarf að vera möguleiki fyrir þá sem það kjósa.

Forseti. Allt hefur þetta áhrif á húsnæðismarkað sem var erfiður fyrir. Heilt bæjarfélag leitar nú að varanlegu húsnæði og frá miðju ári 2022 hefur íbúum landsins fjölgað um 1.000 manns á mánuði eða rúmlega 18.000 manns. Í þeim samanburði kann það að hljóma lítið mál að koma 4.000 manns að á tímum hamfara en allt hefur þetta áhrif á jaðrinum. Himinhátt vaxtastig og þrengri lánaskilyrði hafa haldið aftur af þrýstingi á húsnæðisverð hingað til sem hefur þó áfram hækkað. Vandinn hefur ekki horfið og fólkið í Karphúsinu er mjög meðvitað um það, enda hefur húsnæðisverð hækkað um helming á síðustu fjórum árum, á sama tíma og ráðstöfunartekjur hafa aukist um fjórðung. Hópurinn sem við viljum byggja fyrir kemst ekki að en annar hópur er mættur á svæðið, hópurinn sem finnur ekki fyrir vaxtastiginu með sama hætti og flestir, þeir sem ekki skulda og eru fjársterkir. Gögn frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sýna það glögglega að íbúðum í eigu aðila sem eiga fleiri en eina íbúð fjölgaði í fyrra um rúmlega 2.000, sem er mesta fjölgun frá því eftir hrun.

Hvernig hyggst hæstv. ráðherra breyta þeirri stöðu sem upp er komin, að fjármálastjórn landsins bitni núna fyrst og fremst á ungu fólki og fjölskyldum sem skulda á meðan eignamiklir einstaklingar fá ekki umrædda hækkun á sig? Telur hún þetta skynsamlega hagstjórn?