154. löggjafarþing — 68. fundur,  8. feb. 2024.

aðgerðir til að bæta stöðu á húsnæðismarkaði.

[10:35]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að taka undir það sem hv. þingmaður segir um þetta stóra verkefni sem blasir við okkur, að sigla því í höfn að Grindvíkingar hafi færi á því að fjárfesta á nýjum stað og eignast nýtt heimili, a.m.k. til millilangs tíma eða mögulega til mjög langs tíma. Við horfum á það nú í tölum að það hægir sannarlega á fjölgun aðfluttra en höfum horft upp á gríðarlega mikinn vöxt, allt að 1.000 manns á mánuði. Það segir okkur að verkefnið sem snýr að fjölda þeirra sem eru í Grindavík og þurfa að koma sér fyrir á nýjum stað er viðráðanlegt og að okkar mati hefur það í raun takmörkuð áhrif svona í heildarsamhenginu. Því virðist seðlabankastjóri vera sammála og nefndi það sérstaklega í gær að það væri ekki stórt áhyggjuefni, áhrifin væru takmörkuð, en sannarlega hefðum við áhyggjur af Grindvíkingum.

Þegar spurt er um þau sem eru að reyna að komast inn á húsnæðismarkaðinn og horfa upp á vegginn að því að komast þangað inn rísa og hækka og hækka, þá er það auðvitað mjög stórt verkefni sem við hljótum að vilja ná árangri í. Þar er það bara einfaldlega, þannig að það að ná niður verðbólgu og vaxtastigi er langstærsta hagsmunamálið fyrir þennan hóp og okkur öll. En sannarlega er það fyrir tekjulægri hópa og þau sem eru að reyna að komast inn á erfiðan húsnæðismarkað stærra verkefni heldur en fyrir ýmsa aðra hópa. Ég segi bara aftur: Við verðum að tryggja það að ríkisfjármálin styðji við það markmið. Við verðum að vona að aðilar vinnumarkaðarins semji á þann hátt að við höfum forsendur til að sjá verðbólgu fara niður og vaxtastigið fara niður, sem er langöflugasta leiðin fyrir fólk til að komast inn á fasteignamarkaðinn.