154. löggjafarþing — 68. fundur,  8. feb. 2024.

Palestínubúar sem fengið hafa dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar.

[10:41]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Þegar hæstv. utanríkisráðherra var inntur svara við því hvort stæði yfir höfuð til af hálfu ráðherra að senda fulltrúa íslenskra stjórnvalda til þess að bjarga íslenskum dvalarleyfishöfum, þar á meðal yfir sjöunda tug barna, af Gaza þar sem hundruð manneskja eru drepin á hverjum degi svaraði ráðherra, með leyfi forseta:

„Endanleg ákvörðun í því máli hangir saman við það að við náum og trúum því að við getum náð utan um þá stöðu sem er orðin alvarleg á Íslandi.“

Ráðherrann var þar að vísa í að hann líti svo á að kostnaður við móttöku og brottvísun flóttafólks væri orðinn allt of hár og áréttaði þá afstöðu sína að innviðir á Íslandi væru sprungnir vegna komu flóttafólks hingað til lands. Látum þessar fullyrðingar ráðherrans eiga sig í bili. Spurning mín snýr eingöngu að þeirri fullyrðingu ráðherrans að endanleg ákvörðun um hvort koma eigi konum og börnum frá Gaza í faðm fjölskyldu sinnar hér á Íslandi eins og þau eiga rétt til hangi saman við það að formaður Sjálfstæðisflokksins nái fram vilyrðum um breytingar á útlendingalögum og framkvæmd þeirra gagnvart samstarfsfólki sínu í ríkisstjórn.

Ég spyr ráðherra, sem segir þessa vinnu langt komna: Hvaða breytingar eru þetta sem hann vill ná fram?