Palestínubúar sem fengið hafa dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar.
Forseti. Þá vitum við það. Ráðherra er tilbúinn að bjarga konum og börnum frá aðstæðum sem Alþjóðadómstóllinn hefur lýst áhyggjum af að geti talist þjóðarmorð ef hann fær eitthvað í staðinn. Mannslíf eru í húfi og ráðherrann vill kreista loforð út úr Vinstri grænum og Framsókn um að þau gefi eftir þá litlu mannúð sem eftir situr á þeim bænum eftir sex ára samstarf við Sjálfstæðisflokkinn til að bjarga þeim. Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn. Þetta er ekki boðlegt, virðulegi forseti. Það er ekki boðlegt að ráðherra í ríkisstjórn Íslands sé tilbúin að víla og díla með mannslíf sem pólitíska skiptimynt. Það er skömm að þessu.