kostnaður við alþjóðlega vernd.
Virðulegur forseti. Ég beini hér fyrirspurn til hæstv. utanríkisráðherra en hann er auðvitað búinn að vera lengi á stól fjármálaráðherra og er sömuleiðis formaður Sjálfstæðisflokksins og stærsta stjórnarflokksins nú um stundir. Mig langar að ræða þær upplýsingar sem komið hafa fram á liðnum dögum um kostnaðinn við þjónustu og meðhöndlun þeirra sem hingað leita eftir alþjóðlegri vernd. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra, lýsti því yfir í Spursmálum Morgunblaðsins síðastliðinn föstudag að kostnaðurinn væri um 16 milljarðar á liðnu ári. Síðan dró dómsmálaráðherra fjórum dögum seinna fram að kostnaðurinn hefði verið um 20 milljarðar. Ráðherrar, sérstaklega ráðherrar Sjálfstæðisflokksins, hafa tekið sér í munn orð eins og að staðan sé stjórnlaus, útgjöldin hömlulaus og þar fram eftir götunum. Mig langar að spyrja hæstv. utanríkisráðherra, í ljósi þessa alls, hvort hann telji líklegt að það sé hægt að ná stjórn á þessum málum, þessum útgjöldum, í núverandi stjórnarsamstarfi? Ég deili ekki skoðun hæstv. ráðherra á því að, svona á minn mælikvarða, „mini“-málþóf Pírata hér fyrir réttu ári síðan hafi verið hið raunverulega vandamál hvað það varðar að málið komst ekki í gegn. Það blasir auðvitað við þeim sem greina stöðuna og horfa á með bærilega opin augu að vandamálið liggur innan ríkisstjórnarinnar. Þess vegna spyr ég hæstv. ráðherra: Telur hann líklegt að það sé raunhæft að ná fram breytingum sem að gagni verða í núverandi stjórnarsamstarfi?