154. löggjafarþing — 68. fundur,  8. feb. 2024.

kostnaður við alþjóðlega vernd.

[10:52]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það væri auðvitað hægt að spyrja eftirfylgnispurninga um eitt og annað sem þarna kom fram en mig langar að nota seinni spurningu mína til að ræða við ráðherrann sem, eins og ég sagði áðan, sat lengi á stól fjármálaráðherra, um beinu útgjöldin á liðnu ári, 20.000 milljónir, bein útgjöld ríkisins. Hefur verið gerð einhver raunhæf tilraun til að meta afleiddan kostnað af þeim fjölda sem hingað hefur sótt um alþjóðlega vernd? Við heyrum harmakveinin úr ranni sveitarfélaganna. Velferðarkerfin, hvort sem það er menntakerfi, heilbrigðiskerfi, félagslegu kerfin, húsnæðismálin eins og þau eru, þetta setur þrýsting á þau öll. Þannig að mig langar að spyrja: Eftir allan þennan tíma, þessa þróun sem hefur blasað við, hefur verið gerð tilraun til að meta óbeina kostnaðinn, þ.e. kostnað sem fellur ekki með beinum hætti á ríkissjóð heldur aðra þætti, svo sem sveitarfélög, fyrirtæki, stofnanir og annað?