kostnaður við alþjóðlega vernd.
Virðulegi forseti. Fyrst, áður en ég kem að þessu, vil ég aðeins setja þessa tölu í samhengi af því að hv. þingmaður vísar hér aftur til 20 milljarða tölunnar sem dómsmálaráðuneytið vakti athygli á í vikunni. 20 milljarðar er svona u.þ.b. sama tala og við í heildina á ári setjum í heilsugæsluna á Íslandi — í heild. 20 milljarðar er svona 50% meira heldur en við í heild sem þjóð setjum í þróunarsamvinnu á ári. Utanríkisráðuneytið, með varnarmálunum, með þróunaraðstoðinni, með allri íslenskri utanríkisþjónustu, sendiráðunum öllum saman, var rétt um 30 milljarðar í fjárlögum ársins í fyrra, þannig að 20 milljarðar er risatala. Það er rétt sem hv. þingmaður segir að það segir ekki einu sinni alla söguna vegna þess að sveitarfélögin eru að benda á að samningar við félagsmálaráðuneytið eru ekki fullfjármagnaðir og taka ekki tillit til alls þess kostnaðar sem sveitarfélögin verða fyrir. Svo eru sum sveitarfélög (Forseti hringir.) eins og Hafnarfjörður að lenda í því að fyrir utan samninginn sem þau hafa gert við stjórnvöld um að taka á móti fólki (Forseti hringir.) býr fullt af öðru fólki sem er ekki með samning á bak við sig bara í sveitarfélaginu vegna þess að einhvers staðar verður fólk að búa og það fólk biður líka um þjónustu.