afkomuöryggi heimila.
Virðulegur forseti. Það er gott að við fjármálaráðherra erum sammála um ýmislegt en við erum greinilega ekki sammála um leiðir. Nú er það staðreynd að verðbólgan hefur lækkað um 3,5 prósentustig eða um 33,4% á einu ári. Samt talar seðlabankastjóri eins og vextir verða ekki lækkaðir á þessu ári. Veit hæstv. ráðherra hvað vextir myndu hækka mikið ef verðbólgan myndi hækka þetta mikið? Ætli það myndi ekki telja svona 2–3 prósentustig? En hvað varðar samhengi hlutanna, að ná verðbólgu niður fyrir lakast stöddu hópana, þá er það bara gott og blessað. En aðgerðirnar, vaxtahækkanirnar, koma verst niður á þeim sem verst standa og minnst eiga, bæði þeim sem skulda mikið í húsnæði sínu en ekki síður þeim sem eru í leiguhúsnæði vegna þess að allar vaxtahækkanir, allar hækkanir í húsnæðiskerfinu, fara beint inn í leiguverðið, allar. Þannig að þetta bara gengur ekki upp. Það verður að fara í einhverjar aðgerðir (Forseti hringir.) sem koma bæði jafnar niður og kannski meira niður á þeim sem meira hafa og hafa úr meiru að moða. (Forseti hringir.) Þetta gengur ekki upp svona og ríkisstjórnin getur ekki firrt sig ábyrgð á því.