154. löggjafarþing — 68. fundur,  8. feb. 2024.

afkomuöryggi heimila.

[11:01]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Miðað við það sem seðlabankastjóri sagði í gær hljótum við að vona og vænta og gera hvað við getum til að tryggja að a.m.k. þeir þættir sem við getum haft áhrif á, — aðrar ákvarðanir eru teknar í sjálfstæðum seðlabanka — eins og það hvernig aðilar á vinnumarkaði semja sín í milli, eins og það hvernig ríkisfjármálin birtast, bæði aðkoma okkar að þeim samningum og sömuleiðis fjármálaáætlun sem kemur hingað inn í þingið í mars. Við hljótum að gera hvað við getum til að styðja við það verkefni, að það séu forsendur til að lækka vexti. Ég þekki það að hv. þingmaður hefur miklar skoðanir á vaxtastigi Seðlabankans og talar um ofbeldi hans og ofbeldi stjórnvalda sem ég get að sjálfsögðu ekki tekið undir. Þannig að já, við erum kannski ósammála um leiðirnar. Ég held samt að við ættum að einblína á það að við erum algerlega sammála um meginmarkmiðið og til hvers er að vinna og hverjir munu njóta góðs (Forseti hringir.) af því fyrst og fremst, sem eru þau sem lakast standa í samfélaginu, að okkur takist þetta verkefni og við getum það.