154. löggjafarþing — 68. fundur,  8. feb. 2024.

Stefna stjórnvalda í vímuefnamálum.

[11:05]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Það er skrýtið kannski að segjast fagna því, en ég geri það samt, aukinni umræðu og áherslu hér inni í þingsal og m.a. frá hv. þingmanni um það hvar við erum stödd sem samfélag þegar kemur að þessari miklu fjölgun einstaklinga sem eru á þessum stað og hver kostnaðurinn er fyrir samfélagið allt, bæði beinn kostnaður og annar samfélagslegur kostnaður. Við þurfum að horfa á það með raunsæjum hætti og ég held að það væri líka gagnlegt að við tækjum umræðuna frá ýmsum sjónarhornum og líka þeim sem eru óþægileg.

Ég er sammála hv. þingmanni um að við þurfum að vera með heildstæða stefnu og við þurfum heildstæða nálgun og það kallar á mikið samstarf á milli ráðuneyta, stofnana sveitarfélaga, allt þetta, sem við sem kerfi eigum bara óþolandi erfitt stundum með. En það er auðvitað mikil áhersla á þetta atriði inni í kerfinu og auðvitað er fagráðherrann, sem er ekki svo sem ekki einn heldur fleiri en einn, með það á sínu borði og vinnur það af miklum heilindum og með skýran fókus.

Við þurfum líka að hugsa: Hvernig erum við sem samfélag? Hvernig komum við sem samfélag fram við einstaklinga sem eru í þessari stöðu? Hver eru viðhorf okkar? Hvernig er regluverkið okkar? Getum við gert betur í skaðaminnkun? Svarið mitt við því er já, við getum sannarlega gert það. Er það tilfinningaþrungin umræða að taka? Mér finnst það oft vera þannig og ég hef alveg skilning á því. En hvernig gengur okkur sem samfélagi og sem löggjafarvaldi að tala um þau mál út frá alls konar óþægilegri hliðum þess, eins og þeirri að við myndum helst vilja að enginn þyrfti að glíma við það en við gerum það samt? Hvernig getum við hér náð betri tökum á því þannig að fólk upplifi að við séum tilbúin (Forseti hringir.) til að grípa það óháð því hvernig það lendir í þeirri stöðu? Hvernig geta kerfin unnið betur saman? (Forseti hringir.) Og jú, örugglega kemur þar inn líka fjármagn en hugsum líka hvað við gætum sparað, hvaða fjármuni við gætum fundið (Forseti hringir.) ef við nálguðumst þetta í heild sinni, öll kerfi, og ef við leyfðum okkur að tala miklu meira um þátt skaðaminnkunar í öllu þessu.