154. löggjafarþing — 68. fundur,  8. feb. 2024.

Stefna stjórnvalda í vímuefnamálum.

[11:08]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegur forseti. Ég á í þessum orðaskiptum við fjármálaráðherra að þessu sinni en þetta er málaflokkur sem teygir sig inn á öll málefnasvið, nánast öll málefnasvið, þannig að það er ofur einfaldlega þannig að við þurfum öll að taka höndum saman.

Ég fagna nú því sem hæstv. ráðherra er að tala um, til að mynda skaðaminnkun. Það er nefnilega hægt að gera ansi margt, bæði í skaðaminnkun, það er hægt að vinna betur í því að taka á móti fólki í bráðum vanda þannig að það fái aðstoð strax, þurfi ekki að bíða lengi eftir meðferðarplássi, við skulum ekki gleyma því að tala um forvarnir. En það sem kannski liggur mest á núna er auðvitað að fjölga meðferðarrýmum því að vandinn er þannig að fólk er ekki alltaf tilbúið, eins einkennilega og það hljómar, til að þiggja hjálp þannig að við verðum að geta mætt fólkinu þegar það vill það.

Heimildin var til að mynda að fjalla um Mark Gunnar Roberts sem lést í desember eftir að hafa verið í fangelsinu á Hólmsheiði. Móðir hans segir:

„Fangelsin grípa þá fyrr en geðdeildin. Það er fáránlegt að anda léttar þegar þeir fara í fangelsi því þeir fá betri geðaðstoð þar, þótt hún sé ömurleg, heldur en þegar þeir ganga lausir.“ (Forseti hringir.)

Þetta er bara ósköp einfaldlega veruleikinn sem blasir við okkur. (Forseti hringir.) Ég ætla að spyrja hæstv. ráðherra: (Forseti hringir.) Kann ráðherra einhverja skýringu á því af hverju samfélagið er svona sinnulaust, (Forseti hringir.) af hverju ráðamenn eru svona sinnulausir, og við hér á þingi, þegar ástandið er jafn alvarlegt og raun ber vitni?