154. löggjafarþing — 69. fundur,  8. feb. 2024.

fjarvinnustefna.

38. mál
[11:31]
Horfa

Inger Erla Thomsen (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur fyrir þessa þörfu þingsályktunartillögu. Sjálf er ég búsett rúma 100 km frá Reykjavík en ég hef bæði stundað háskólanám við HÍ og starfað í fjarvinnu á skrifstofu staðsettri í Reykjavík. Ég styð þessa tillögu eindregið þar sem það er gríðarlega mikilvægt að gera greinargóða og ítarlega úttekt á tækifærum í fjarvinnu og fjarvinnustefnu fyrir íslenskan vinnumarkað. Ég skil að ekki er verið að tala fyrir kerfislægum breytingum en mér finnst mikilvægt að þetta sé gert almennilega og með allt landið í huga svo að raunverulega sé hægt að stunda vinnu óháð búsetu. Mér finnst frábært hvernig hv. þingmaður talar um landsbyggðirnar í fleirtölu og gerir þannig að einhverju leyti grein fyrir því að byggðirnar úti á landi eru ólíkar og með misjafnar þarfir. Það sem þingsályktunartillöguna skortir þó að mínu mati er áherslan á mismunandi byggðir landsins. Ég vildi bara spyrja hvort hv. þingmaður hefði skoðað eitthvað mismunandi skilgreiningar á ólíkum byggðum og þörfum þeirra á tækifærum til fjarvinnu. Þá á ég sérstaklega við staði til að stunda fjarvinnu, þ.e. skrifstofuaðstöðu sem þú getur leigt eða slíkt, vegna þess að það er heldur ekki geðheilsunni hollt að vera bara heima og stunda fjarvinnu heiman frá alltaf. Væri það jafnvel eitthvað sem væri vert að skoða og bæta við, að mikilvægt væri að ráðherra skoðaði það í gerð stefnunnar?