154. löggjafarþing — 69. fundur,  8. feb. 2024.

fjarvinnustefna.

38. mál
[11:33]
Horfa

Flm. (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni góð orð og áhugavert að heyra reynslu hennar sjálfrar í þessu samhengi og sambandi. Það er ekkert sérstaklega fjallað um ólíkar þarfir byggðanna. Ég hef ekki þær upplýsingar sjálf en mér finnst það svo augljóst, í samhengi við að ég lít á þetta mál sem byggðamál, að það sé þáttur sem yrði að skoða í svona úttekt. Ég þekki gagnrýnina sem við mörg heyrum um störf án staðsetningar, að það sé aðgerð sem hafi verið falleg hugmyndafræði og með góð markmið en hafi í einhverjum tilvikum haft þveröfug áhrif. Ég held að með byggðagleraugun á nefinu þá ætti stefna um fjarvinnu að geta lært af því sem við höfum séð að gerðist í samhengi við hugmyndafræðina um störf án staðsetningar. Mér finnst augljóst að þarfir byggðanna eru ólíkar. Ég held að það mætti vel skoða einhverjar þær leiðir sem hv. þingmaður nefnir. Ég myndi sjálf t.d. vísa í reynslu mína af því að starfa fyrir Háskólann á Bifröst þar sem við vorum með aðstöðu til að prófa. Það skiptir máli að vera með aðstöðu til að prófa víðs vegar um landið og heimilið getur auðvitað ekki verið svarið þar frekar en hvað atvinnu varðar. Svona fjarvinnustefna held ég líka, ef við erum meðvituð um mikilvægi þess að vera með skóla um landið allt, að geti leitt til þess að við fáum önnur störf inn í ákveðnar byggðir, að við tengjum saman tækifæri til menntunar og tækifæri til starfa. En hiklaust tel ég að það mætti skoða og ætti að skoða þá þætti sem þingmaðurinn nefnir.