154. löggjafarþing — 69. fundur,  8. feb. 2024.

fjarvinnustefna.

38. mál
[11:40]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég kem hérna upp til að fjalla um þingsályktunartillögu um fjarvinnustefnu en aðallega til að taka undir þessa þingsályktunartillögu. Mér finnst mjög mikilvægt að þetta verði skoðað út frá mörgum hliðum. Okkur var hent út í djúpu laugina í Covid en sem betur fer vorum við nokkuð vel undirbúin. Þar vil ég fyrst nefna ljósleiðaravæðinguna um allt land. Sem betur fer var byrjað í dreifbýlinu því að það vill stundum verða út undan ef góð tenging er komin í þéttbýlið. Það eru orðin flest þéttbýli á landinu þar sem er gott netsamband. Það er á flestum stöðum og ég get t.d. nefnt Árneshrepp. Þar er mjög góð ljósleiðaratenging þannig að fjarvinna frá Árneshreppi í New York, Ísafirði eða í Reykjavík er jafn möguleg og hún er mikilvæg.

Kosturinn við fjarvinnu er margvíslegur. Það hefur komið fram í ræðum og andsvörum að aðstæður eru náttúrlega misjafnar milli byggðarlaga. Fyrst og fremst er þetta byggðamál og þetta er í raun líka mikilvægt fyrir þjóðina í heild. Einn kosturinn er náttúrlega að geta nýtt alþjóðlega hæfileika ef maður getur sagt svo, annar kostur er sveigjanleiki og það getur verið tíma- og kostnaðarsparnaður, jafnvægi og framleiðni getur jafnvel orðið betri þar sem ekki fer tími í mikinn akstur. Og byggðamál, það er kannski númer eitt.

Það er mikilvægt að staldra við og taka saman hvað við þurfum að gera betur. Það eru bæði stofnanir og fyrirtæki sem eru búin að setja sér fjarvinnustefnu, að fólk geti kannski unnið einn dag heima. Þá er settur upp nokkuð skýr kassi. Ég þekki dæmi í opinberri stofnun þar sem þú getur valið einn dag í viku að vinna heima og þá þarftu að skila inn þessum tímum og það er hægt að fylgjast með músinni og allt það. En ég hef líka heyrt að það kannski vanti svolítið upp á að fylgst sé með hvernig aðbúnaðurinn er hjá fólki sem vinnur í fjarvinnu frá fyrirtækjum, að fólk sé kannski að nota sinn eigin tækjabúnað og tölvur eða að það vanti kannski stóla. Ég held að þetta sé atriði sem þurfi svolítið að koma inn á, að gæta að aðbúnaði fólks í fjarvinnu og heimavinnu. Fyrirtæki eða stofnanir eiga heldur ekki að komast upp með að vita af sínu fólki með slæman aðbúnað því að aðstæður geta kannski þrýst fólki frekar heim til að vinna. Líka eins og með veikindi barna, þar hugsar maður einhvern veginn bara að ef starfsmaður hringir og segist ætla að vinna heima í dag af því að hann er með veikt barn, hvort okkur finnist þá sjálfsagt að foreldri sé að vinna frá barninu. Eða hvað? Er það nægilega góð vinnuaðstaða?

Ef við tölum síðan um byggðaáhrif þá eru víða í þéttbýlum landsins komin upp samvinnurými og sveitarfélög hafa oft haft framgöngu í að koma þessu upp. Þá hefur líka komið upp, hef ég hef ég heyrt, að það er svolítið ætlast til þess að sveitarfélögin setji upp þessi samvinnurými og beri kostnað af þeim — sem er náttúrlega alls ekki rétt, að það eigi að vera svo af því að það sé verið að laða til sín fólk til þess að vinna og eiga heimilisfestu í sveitarfélaginu og þetta sé bara á ábyrgð sveitarfélaganna. Þetta er eitthvað sem þarf að gera betur. Vissulega hafa sveitarfélögin verið í forgöngu í þessum efnum en svo hafa komið upp svona skrifstofuhótel sem eru bara mjög flott og er hægt að leigja sér, hvort sem er persónulega til vinnu eða til náms. Þau eru mjög mikilvæg vegna þess að einn af ókostum við fjarvinnu er einmanaleiki og einmanaleiki er bara hættulegur sjúkdómur. Hann jafn hættulegur og að reykja einn pakka á dag. Eins líka er talið að þetta geti gengið á fólk og það er ekkert öllum gefið að vinna svona einn heima. Maður þekkir það nú bara þegar maður fór heim í Covid að þegar maður var á fundum var gott að taka fyrst eina þvottavél á milli funda og raða í uppþvottavélina en þá var þriðja vaktin komin einhvern veginn á ábyrgð þess sem sat heima og vann.

Svo er það annað sem þyrfti kannski að taka inn í ef sest væri niður og þetta skoðað en það er jafnræði til starfsframa. Það er nú bara staðreynd að við höfum talað um að við séum að sameina stofnanir ríkisins og það eru vissulega útibú úti um landið en tilhneigingin verður sú að yfirmannastaða eða deildarstjórastaða eða verkefnastjórastaða, það sogast allt að höfuðstöðvunum af því að maður vill kannski svolítið horfa í augun á sínum næsta samstarfsmanni. Það þarf að skoða þetta í þessu sambandi. Það er einhvern veginn allt öðruvísi þegar allir eru í fjarvinnu. Það eru til fyrirtæki úti um heim og hér á landi sem öll eru í þessu. Maður þekkir það þegar maður er á fundi að ef maður er einn á fjarfundi þá verður maður svolítið bara tákn á skjánum og maður gleymist. Þetta held ég að geti líka gerst í fjarvinnu. Síðan er náttúrlega hópvinna og stjórnendamál. Ef næsti yfirmaður er t.d. í Vestmannaeyjum og maður er að vinna á Ísafirði þá kannski verður ekki þetta samband. En auðvitað kemur þetta líka til með að þróast og lærast.

En svo sannarlega er ég hingað komin til að taka undir þetta og ég myndi vilja sjá þessa vinnu. En það er þetta sem ég hef verið að nefna sem mætti kannski taka með; að það sé fylgst með starfsfólki í fjarvinnu, að það sé ekki bara á náttfötunum einmana heima. Þá verður framleiðnin náttúrlega engin en kannski þvotturinn hreinni fyrir vikið. Ég held að það sé tímabært og nauðsynlegt að fara í þessa vinnu.