barnalög.
Virðulegur forseti. Mig langaði bara til að koma hér upp til að þakka hv. flutningsmanni þessarar tillögu, Gísla Rafni Ólafssyni. Þetta er akkúrat það sem við þurfum að gera á þessu þingi. Við þurfum að vera vakandi fyrir því sem við sendum frá okkur, þeim áhrifum sem það hefur. Og þegar upp koma svona skýr dæmi um misræmi er mjög mikilvægt að við grípum til þess ráðs að reyna að laga það. En mér sýnist að þetta ágæta frumvarp frá hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni, sem er stutt af öðrum þingmönnum hér, sé þess eðlis að það sé til bóta. Það er óþolandi að kylfa sé látin ráða kasti varðandi það hvaða börn það eru sem njóta meðlags frá foreldrum sínum eða því foreldri sem ekki sinnir uppeldi þeirra. Og það að það kjósi af einhverjum ástæðum að flytja úr landi finnst mér ekki vera efnisrök fyrir því að barnið njóti ekki sömu réttinda og önnur börn.