Frestun á skriflegum svörum.
Borist hafa bréf frá félags- og vinnumarkaðsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 617, um endurskoðun á reglum um búningsaðstöðu og salerni, frá Andrési Inga Jónssyni, og á þskj. 324, um búsetuúrræði fatlaðs fólks, frá Bryndísi Haraldsdóttur. Einnig hefur borist bréf frá menningar- og viðskiptaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 901, um styrki og samstarfssamninga, frá Bergþóri Ólasyni. Að lokum hefur borist bréf frá matvælaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 834, um endurnýtingu örmerkja, frá Njáli Trausta Friðbertssyni.