154. löggjafarþing — 70. fundur,  12. feb. 2024.

aðgerðir í hitaveitumálum á Suðurnesjum.

[15:20]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég vil byrja á að þakka aðilum sem hafa náð að tengja hitaveituna á Suðurnesjum niður í Reykjanesbæ fyrir þrotlausa vinnu og í rauninni fram yfir það sem mætti búast við. En á því byggi ég aðeins fyrirspurn mína til hæstv. fjármálaráðherra en samkvæmt heimildum Heimildarinnar og birtist í fjölmiðlum fyrir helgi, þá fékk ríkisstjórnin minnisblað um hvaða aðgerðir ríkisstjórnin þyrfti að grípa til samstundis til að tryggja öryggi fólks ef hitaveitulögnin færi í sundur. Þar var m.a. að setja upp kyndingu við Fitjar, olíukyndistöð, til þess að tryggja heitt vatn á svæðinu. Það var ekki brugðist við því. Ef sú stöð hefði verið komin upp hefði ekki orðið það heitavatnsleysi sem við höfum horft upp á undanfarna daga. Því langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra: Sökum þess að það var ekki lagt í þær aðgerðir þá, er ekki tímabært að grípa til þeirra aðgerða nú þegar? Það er búist við gosi aftur á næstu þremur vikum og þess vegna á þessum stað aftur og lögnin gæti farið í sundur aftur. Hver er kostnaðurinn þarna á bak við? Er það vandamál þegar allt kemur til alls að það var ekki gripið til þeirra aðgerða sem komu fram í minnisblaðinu? Hver er skaðinn sem við horfum upp á vegna þess heitavatnsleysis sem hefur orðið á undanförnum dögum? Er ráðherra með slíkar upplýsingar eða fáum við slíkar upplýsingar um leið og ráðherra veit það?