154. löggjafarþing — 70. fundur,  12. feb. 2024.

aðgerðir í hitaveitumálum á Suðurnesjum,.

[15:22]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessa fyrirspurn. Í þeim aðstæðum sem við höfum horft framan í undanfarið er það auðvitað þannig að við hlaupum hratt á ýmsum stöðum og við þurfum að taka ákvarðanir hratt, sumar stórar. Ég get alveg sagt það hér að hluti af því að standa í stafni og taka stórar ákvarðanir er að vera meðvitaður um að það eru ekki alltaf allar ákvarðanir sem voru algjörlega réttar eða gerðar í réttri röð og ég skal bara í öllu sem viðkemur þessu eða hverju öðru vera mjög framarlega í flokki til að segja það. Ég held að það væri mjög skrýtið ef við viðurkenndum það ekki. Hins vegar hafa verið unnin kraftaverk á þessu svæði undanfarnar vikur og mánuði og þegar við þurfum að forgangsraða verkefnum með tilliti til þess hvað er byggt á bestu mögulegu upplýsingum um það í hvaða röð við eigum að gera hlutina þá gerum við okkar besta í því. Það hefur aldrei verið þannig að við höfum ekki farið í einhverjar framkvæmdir vegna þess að við höfum sagt: Heyrðu, við eigum ekki fjármagn til þess að gera það. Það hefur aldrei verið ástæða og verður ekki ástæða þegar kemur að viðbragði í náttúruhamförum. Við hins vegar vitum og sjáum það núna og undanfarnir mánuðir hafa verið gríðarlega sterk áminning um það í hvernig landi við búum og við skuldum ýmiss konar innviðauppbyggingu viðbragðsgetu. Við þurfum að efla okkar viðbragðsaðila. Við þurfum meiri raforku, við þurfum meira af heitu vatni, við þurfum líka að sækja lághita og HS Orka er farin í lághitaborun þar sem vonir standa til að geta fundið 50–60°C heitt vatn. Það mun sannarlega taka einhverja örfáa mánuði en er farið af stað. Við vitum líka að þarna var ekki vandinn að það vantaði akkúrat raforku inn á svæðið heldur getu dreifikerfisins til að koma henni áleiðis. (Forseti hringir.) Við höfum því tekið margar stórar ákvarðanir(Forseti hringir.) og þær eldast vel en verkefninu er ekki lokið og við þurfum að gera betur.