breytingar á löggjöf um hælisleitendur og aðstoð við fólk frá Gaza.
Herra forseti. Upplýsingagjöf til ríkisstjórnar og inn á ráðherranefndarfundi frá ýmsum aðilum inni í stjórnkerfinu og viðbragðsaðilum hefur verið mikil og við hefðum annars ekki haft burði til að fara í allt það sem bent var á að þyrfti að gera, ýmist til skemmri tíma, millilangs tíma eða lengri tíma. Heilt yfir hefur okkur held ég farnast að taka ákvarðanir í ágætri röð, en við hefðum auðvitað aldrei náð að framkvæma allt sem hefur verið framkvæmt nema fyrir það fólk sem starfar þarna dag og nótt til að koma því áleiðis. Það er ekki þannig að það hafi komið bil í uppbyggingu eða viðbrögðum eða ákvörðunum í þessu ferli. Við höfum sífellt verið að. En aftur: Talandi um að læra af reynslunni og ákvarðanatökunni, sem ég er sammála og við þurfum að geta gert, (Forseti hringir.) þá vil ég líka að við minnum okkur á í hvernig landi við búum og hvað við þurfum að gera. Ég vona að þingheimur geti sameinast um þau verkefni sem eru langt umfram það sem við höfum gert hingað til.