tilgangur tilvísanakerfis hjá heilsugæslunni.
Herra forseti. Við þekkjum stöðuna á heilsugæslum landsins. Við vitum af erfiðleikum fólks við að fá tíma þar sem persónulegar tengingar og smá frekja er gulls ígildi í kerfi sem er sprungið. Við vitum líka af óheyrilegu álagi á heimilislækna en könnun frá síðasta ári sýnir að 25% þeirra hafa íhugað mjög alvarlega að fara í veikindaleyfi. Formaður Félags íslenskra heimilislækna segir að þessar sláandi niðurstöður hafi því miður ekki keyrt af stað þær breytingar sem læknar hefðu viljað sjá í kjölfarið. Þetta er í samræmi við orð formanns Læknafélags Íslands sem segir lækna upplifa í auknum mæli samráðsleysi við sig við mótun heilbrigðiskerfisins. Það er eiginlega sturlað að í þessu ástandi skuli skriffinnska að kröfu stjórnvalda vera að kæfa læknana. Nú virðist mælirinn fullur og þeir farnir að taka málin í sínar eigin hendur eftir áralanga þrautagöngu við að ná eyrum stjórnvalda. Félag íslenskra heimilislækna hefur sent frá sér áskorun til félagsmanna um að hætta að skrifa tilvísanir vegna barna þegar læknarnir eiga enga beina aðkomu að málinu nema einungis að skrifa út tilvísun að kröfu stjórnvalda svo að fólk geti fengið niðurgreiðslu frá Sjúkratryggingum. Í áskoruninni kemur fram að þrjú ársverk heimilislækna fóru í slíkar tilvísanir vegna barna á síðasta ári og þetta er bara brot af skriffinnskunni. Þetta veldur auðvitað ekki bara óþarfaálagi á lækna heldur líka foreldra sem þurfa að þvælast um í kerfinu til að þóknast kerfinu.
Mig langar til að spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra hvort hann hafi upplýsingar um það hvort þessi krafa undanfarinna ára, krafa stjórnvalda um tilvísanir, hafi leitt til þess að betur sé farið með almannafé, hvort krafan hafi leitt til betri þjónustu við notendur kerfisins, hvort ráðherra (Forseti hringir.) hafi upplýsingar um að kraftar lækna séu betur nýttir með þessari skriffinnsku og í raun og veru, (Forseti hringir.) af því að það liggur ekki ljóst fyrir, fyrir hverja þetta kerfi er hugsað.