154. löggjafarþing — 70. fundur,  12. feb. 2024.

tilgangur tilvísanakerfis hjá heilsugæslunni.

[15:32]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það er auðvitað rétt að það er gríðarlega mikið álag á kerfinu. Við þekkjum það öll. Nákvæmlega þess vegna finnst manni liggja ljóst fyrir að eitt af lykilverkunum sé að hreinsa það af því sem er ekki annað en óþarfaskriffinnska þegar upp er staðið og í öllu falli að hafa upplýsingar fyrir hendi um hvort þetta fyrirkomulag, þetta tilvísanakerfi sem virðist býsna alltumlykjandi, svari raunverulega kostnaði. Ef staðreyndin er sú að á sex árum hafi ekki verið farið í það að átta sig á því hvort þetta spari tíma lækna, auki aðgengi fólks, bæti meðferð fjár — þetta eru allt grunnstoðir í því risavaxna verkefni sem er að bæta og tryggja hér áfram gott heilbrigðiskerfi — ef þær upplýsingar liggja ekki fyrir þá er það auðvitað ekki nógu gott. Ég tók þessa barnalækna sem dæmi af því að það er nærtækast og vegna þessa ákalls frá heimilislæknum, en dæmin eru bara svo miklu fleiri. (Forseti hringir.) Ég ætla að túlka svörin þannig, og kannski getur hæstv. ráðherra verið skýrari með það í seinni umferð, að raunverulega sé verið að fara í vinnu þannig að við fáum upplýsingar um það upp á borð hvort þetta sé kerfi sem virkar fyrir okkur eða hvort tími sé kominn til að snúa og finna aðrar leiðir.