154. löggjafarþing — 70. fundur,  12. feb. 2024.

áætlanir stjórnvalda til að tryggja orkuöryggi á Suðurnesjum.

[15:40]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Það kæmi upp mjög alvarleg staða á Suðurnesjum ef við hefðum hvorki rafmagn né vatn. Það er mjög mikilvægt að horfa á þá sviðsmynd og að stjórnvöld setji fram áætlun um hvernig bregðast mætti við ef slíkt myndi gerast, og það gæti gerst innan fárra vikna. Orkuverið í Svartsengi er íbúum Suðurnesja afar mikilvægt en það er í eigu einkaaðila sem eru með önnur markmið en opinberir aðilar í slíkum rekstri. Þetta á bæði við um HS Orku og HS Veitur. Þó að opinberir aðilar eigi 51% í HS Veitum hafa einkaaðilarnir neitunarvald. Telur hæstv. ráðherra það vera til trafala í þeim öfgafullu aðstæðum sem nú eru uppi á Suðurnesjum að lykilfyrirtækin séu í einkaeigu? Flækir það málin þegar gera þarf kröfu á fyrirtækin að fara í aðgerðir sem eru kostnaðarsamar en nauðsynlegar? (Forseti hringir.) Hvar eru mörkin á milli ríkisins og einkafyrirtækis í þeim efnum? Eru samfélagslegar skuldbindingar þessara fyrirtækja að einhverju leyti formlegar?