upplýsing um stöðuna á Suðurnesjum.
Forseti. Mig langaði að taka undir með hv. þm. Jóhanni Friðriki Friðrikssyni. Ástandið á Reykjanesi er alvarlegt. Við kannski sluppum smá með skrekkinn, ég var akkúrat að fá skilaboð um að það væri kominn smá hiti í húsið hjá mér. Við þurfum að muna að það eru kannski þrjár til fjórar vikur í næsta eldgos og það eldgos gæti verið þannig að það flæði yfir nýju lögnina sem var lögð eða lögnina á öðrum stað eða yfir Svartsengi sjálft. Við þurfum virkilega að fá að ræða hér inni ekki bara plan A og ekki bara plan B heldur hvort ekki sé byrjað á plani C, D og E, hver þau plön eru, hvernig var byrjað á þeim og hvenær, og ef við þurfum að samþykkja einhverja peninga þá viljum við gera það sem fyrst.