154. löggjafarþing — 70. fundur,  12. feb. 2024.

veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.

690. mál
[16:06]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra fyrir sína fyrstu yfirferð á fyrirliggjandi frumvarpi sem hefur þann yfirlýsta tilgang að gera breytingar á þeirri neikvæðu stöðu sem hefur skapast á framboði íbúðarhúsnæðis til búsetu á liðnum árum og ráðherra hefur fjallað ágætlega um. En það verður þó að segjast að hér virðist löggjafinn ætla að missa af gullnu tækifæri til að gera þær breytingar sem kallað hefur verið eftir á undanförnum árum til þess að jafna leikinn á húsnæðismarkaði, auk þess sem þessar breytingar munu ekki gera nokkurn skapaðan hlut til að bregðast við vanda Grindvíkinga sérstaklega.

Mér finnst athyglisvert að í frumvarpinu, í niðurlagi 2. kafla almennrar greinargerðar, er komið inn á nauðsyn lagasetningar m.a., svo ég les hér upp, með leyfi forseta:

„Óhætt er að fullyrða að þessi nýlega þróun samræmist hvorki tilgangi né markmiði laga nr. 85/2007, þ.e. að stuðla að auknum stöðugleika í rekstri sem og að veitinga- og gististarfsemi falli að skipulagi viðkomandi sveitarfélags hverju sinni, sbr. 2. gr.“

Ég ítreka að ég skynja mikinn vilja til þess að leiðrétta þau mistök sem gerð voru með Þórdísarreglugerðinni 2018, en svo virðist sem viðleitni hæstv. ráðherra í þessu frumvarpi muni ekki fela í sér eina einustu leiðréttingu á þeirri þróun sem hefur skapast á leigumarkaði og þarf að leiðrétta án tafar. Ef ég hef rangt fyrir mér í þessari ályktun þá myndi ég gjarnan þiggja útskýringu á því frá ráðherra. Ég sé ekki mikla yfirferð á því hvers vegna ekki var ráðist í að leiðrétta þennan vanda afturvirkt. Í umfjöllun frumvarpsins er komið með mjög takmörkuðum hætti inn á þýðingu gildandi stjórnarskrárákvæða sem kunna að hafa áhrif á starfsemi sem þessa. En ég ítreka beiðni mína um að fá útskýringu á því af hverju við tökum ekki skrefið alla leið og látum íbúa þessa lands mæta forgangi á leigumarkaði.