veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.
Virðulegi forseti. Eins og fram kom í framsögu minni er það svo, eins og hv. þingmanni er líklega kunnugt um, að mjög erfitt er að vera með áhrifin afturvirk og er það í samræmi við almenn ákvæði stjórnarskrár um atvinnufrelsi og eignarréttindi. Við getum að sjálfsögðu fjallað um það og stjórnarskrána og mikilvægi þess að hér ríki atvinnufrelsi og að við virðum eignarréttindi þeirra sem hafa til þeirra unnið.
Ég er alveg sammála hv. þingmanni að auðvitað skiptir gríðarlegu máli að framboðshlið húsnæðismarkaðarins sé í eins miklu jafnvægi og við getum mögulega haft hana. Hér er bara um eina aðgerð stjórnvalda að ræða varðandi framboðshliðina og það er ljóst að ríkisstjórnin er að fara í fleiri aðgerðir til að sinna þessari framboðshlið vegna þess að við sjáum að það hefur þrengst verulega um á húsnæðismarkaði og horfurnar næstu 2–3 árin eru heldur ekkert sérstaklega bjartar. En hafandi sagt það þá er ég ekki í nokkrum vafa um að hér er verið að taka mjög mikilvægt skref vegna þess að mikið af því íbúðarhúsnæði sem var hugsað fyrir íbúðir og leigumarkaðinn fór í aðra starfsemi og við erum auðvitað að koma í veg fyrir með þessu frumvarpi að svo verði áfram. En ég vísa í atvinnufrelsi og stjórnarskrána varðandi það hvers vegna við höfum ekki farið í það að gera þetta afturvirkt.