154. löggjafarþing — 70. fundur,  12. feb. 2024.

veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.

690. mál
[16:15]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki alveg að kveðja þessa umræðu hérna og leyfi mér aðeins að fara yfir þetta nokkuð skipulega fyrst við höfum vettvang til þess. Í fyrsta lagi: Jú, að sjálfsögðu, og ég vil gæta sanngirni. Það er mjög mikilvægt að það sé gert hér í jafn viðamiklum aðgerðum og eru fyrirhugaðar hér. Og að sjálfsögðu fagna ég því að við séum að taka mikilvægt skref, að sjálfsögðu. Ég er alltaf að segja þetta en ég meina það sem ég segi: Það er okkur í Samfylkingunni mjög mikilvægt að koma fram af einurð í þeim aðgerðum sem varða hið mikla almannavarnaástand og það mikla óróleikaástand sem skapast hefur núna á Reykjanesskaga. Við höfum sýnt það í verki. Við erum svo sannarlega samvinnufús þegar á bjátar og þegar þjóðin þarf að standa saman. Við biðjum hins vegar um það að samráð sé sömuleiðis gott og það ríki gagnsæi varðandi ákvarðanir stjórnvalda, að tímanlegt samráð sé haft við hagsmunaaðila. Og svo vitum við auðvitað að pólitíkin er eins og hún er, sumt sem er hægt, annað ekki.

En í þessu máli ítreka ég það sem ég sagði áðan, þ.e. að við höfum lengi einblínt á þennan hluta leigumarkaðarins vegna þess að hér hefur ójafnvægi skapast sem er mannanna verk. Árið 2016 voru gerðar breytingar á reglugerð sem varða sérstaklega mismunandi flokka gististarfsemi í heimahúsum annars vegar og atvinnustarfsemi hins vegar. Einhverra hluta vegna, og við höfum aldrei fengið nægilega góðar skýringar á því hvers vegna svo var, var sú breyting gerð í þáverandi ráðuneyti ferðamála að atvinnurekendum var heimilað að stunda starfsemi sína í íbúðarhúsnæði. Þetta íbúðarhúsnæði, sem er núna í viðjum gerviheimagistingar, ef ég má taka svo til orða, kostar sveitarfélögin okkar gífurlegar fjárhæðir.

Ég vona að ég sé ekki að móðga neinn þegar ég segi að þetta er svívirðilegt fyrirkomulag. Það er ekkert eðlilegt við það að þessir atvinnurekendur, sem leigja út sínar margar hverjar glæsilegu fasteignir sem ættu með réttu að vera nýttar úti á hinum almenna leigumarkaði undir íbúa sem eru hér búsettir til langs tíma — það er ekkert ósanngjarnt eða óeðlilegt við það að löggjafinn og framkvæmdarvaldið búi þannig um hnútana að þeir spili bara í sömu deild og aðrir sem eru í hótelgistingu, gistiheimilin í þessu landi.

Ég veit það og það er bara þverpólitísk sátt um þetta sem ég var að segja að mörgu leyti, þó að það endurspeglist kannski ekki í verkum þessarar ríkisstjórnar, að það eru hundruð íbúða, og ég vona að þeim fjölgi ekki núna á næstunni vegna þess að eins og ég kom inn á áðan í andsvari þá geta þeir, sem hafa áhuga á því að falla undir núverandi fyrirkomulag, þ.e. þeir sem vilja leigja út íbúðarhúsnæði í atvinnuskyni og greiða af þessu húsnæði lægri fasteignagjöld, þ.e. bara jafn há fasteignagjöld og ég borga sem íbúi í Reykjavík, bara nýtt tímann vel núna, keypt sér íbúðir og hafið rekstur ef þeim hugnast svo.

Að segja að þetta sé ekki mögulegt út frá stjórnarskránni er að mörgu leyti fyrirsláttur. Auðvitað er alltaf hægt að stilla upp þeirri stöðu þegar við skerðum réttindi sem löggjafi, en við sem löggjafi höfum einfaldlega mjög ríkum skyldum að gegna líka. Við sem löggjafi, Alþingi Íslendinga, höfum mjög ríkum skyldum að gegna við að veita fólki virka vernd frá misrétti. Og eina ákvæði stjórnarskrárinnar sem mér dettur í fljótu bragði í hug að gæti bara hreinlega verið aðstaðan hérna núna er það að við munum sjá tvo hópa; annars vegar þann hóp sem fellur undir eldra kerfið, þá sem borga almennan fasteignaskatt, þ.e. íbúafasteignaskattinn annars vegar, og svo hins vegar þann sem fellur undir nýja fyrirkomulagið. Ég veit það ekki, en ég get alveg séð fram á það að fulltrúar úr síðarnefnda hópnum komi einn góðan veðurdag og segi: Heyrðu, 65. gr. stjórnarskrárinnar. Hér er verið að brjóta á jafnræði. Ég bý ekki við sömu kjör og aðilar sem sóttu hreinlega um á undan mér fyrir einhverjum tíma síðan. Þessi aðstaða hefur skapast. Ég ætla ekki að þreyta ykkur með lærdómi mínum á 1. ári í lagadeild hér og bið ykkur um að kynna ykkur þá dóma sem fjallað hafa um sambærileg mál sem varða mörg hver sjávarútveginn. Þetta varðar ýmsar búgreinar í þessu landi þar sem verið er að gera ákveðnar breytingar þar sem aðilar sem sækja um leyfi síðar njóta einhvern veginn lakari kjara.

Svo vil ég bara minna á það að löggjafinn hefur bara hreinlega líka rétt til að dæma ákveðnar atvinnugreinar ólögmætar. Það er hægt. Það hefur meira að segja oft verið gert við lítinn fögnuð og stundum bara mjög mikinn fögnuð. Ef þið viljið að ég nefni dæmi þá dettur mér í hug þegar nektardans var bannaður með lögreglusamþykkt, bara svo dæmi sé tekið. Ég vil bara ítreka það við hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra að ef það er ekki ætlunin að gera neinar breytingar á því umhverfi sem hefur skapast þá erum við að bregðast almennum leigjendum í þessu landi og leigjendur eiga líka bara hreinlega skilið svör um af hverju við erum ekki að bregðast við ástandinu. Þá þýðir ekki að segja: Já, við erum hrædd um að stjórnarskráin heimili það ekki, vegna þess að við þurfum eiginlega pínulítið að sýna útreikninga, og ekki bara pínulítið, við þurfum hreinlega að gera það. Það er ekki til of mikils mælst.

Þetta eru tvenns konar skilyrði sem við erum með hérna: Ef við ætlum að takmarka atvinnustarfsemi þá gerum við það ekki bara með einu pennastriki niðri í ráðuneyti, við þurfum lög. Þessi lög gætu legið fyrir hérna í dag. Þessi lög gætu hljóðað upp á það að sveitarfélögum væri heimilt að afturkalla þessi leyfi sem gefin eru út á grundvelli laganna frá 2007, sem eru nota bene ótímabundin, sem er mjög skrýtið í sjálfu sér. Það er ekki algengt að leyfi sem gefin eru út af hálfu sveitarfélaga séu ótímabundin. Það er eitt, þ.e. lagaheimildin. Síðan, sem er líka mjög mikilvægur þáttur í því þegar við erum að takmarka réttindi með löggjöf, er almannaþörfin, almannahagsmunirnir. Þá er það okkar hér inni að bítast um það hvað séu almannahagsmunir. Það er þá bara lýðræðisleg niðurstaða hér inni í þessum þingsal ef við komumst að því hvað séu í raun og veru almannahagsmunir. Eru það almannahagsmunir að við búum til þannig stöðu á leigumarkaði að þeir sem raunverulega eru að leigja út íbúðir í atvinnuskyni dýrum dómum greiði af því fasteignagjöld eins og þetta væru fyrirtæki og að við gerum sveitarfélögunum kleift að afturkalla leyfin þeirra afturvirkt? Mér finnst það bara mjög málefnalegt. Það er ekkert sem slær mig mjög illa sem stjórnsýslulögfræðing, sem hefur nota bene starfað hjá sveitarfélögum og stjórnsýslunni í að verða 15 ár. Það er ekkert sem slær mig við þá ákvörðun sem stórt eða íþyngjandi skref. Jú, jú, vissulega er það íþyngjandi, ég ætla ekkert að gera lítið úr því. Það hrópar hins vegar ekkert á mig að hér séum við að brjóta stjórnarskrárákvæði. Og þegar það er svo og þegar við ætlum ekki að taka þetta skref þá viljum við bara einfaldlega fá svör án þess að vísað sé með óljósum hætti til ákvæða stjórnarskrárinnar.

Virðulegur forseti. Ég veit að ég fer fram á mikið en ég ítreka það sem ég sagði áðan: Við erum að missa af mjög mikilvægu tækifæri til þess að gera varanlegar breytingar á ójöfnu fyrirkomulagi, fyrirkomulagi sem samræmist ekki neinum samkeppnissjónarmiðum, fyrirkomulagi sem á sér ekki hliðstæðu í einhverri djúpstæðri pólitískri sannfæringu hér inni. Þetta er bara ójafn leikur. Maður fær það á tilfinninguna að það sé verið að vernda ákveðna hópa frá því að þurfa að undirgangast sanngjarnar leikreglur og það slær mig illa. Við jafnaðarmenn erum ekki þöglir þegar við sjáum fram á slíkt. Við munum halda þessu máli á lofti og ítrekum það að hér er verið að búa til tvo hópa sem búa ekki við sömu aðstæður og það er aldrei gott heldur. Ég vona svo sannarlega að við séum ekki að sjá fram á einhvers konar skaðabótaskylda háttsemi af hálfu löggjafans, þó svo að ég ætli ekkert að vera að taka eitthvað mjög stórt upp í mig með það. En það væri svo sem ekki heldur án fordæma. Eins og ég segi, ég er bara vonsvikin yfir því að við skulum ekki vera að taka þetta mál alla leið og ég hvet ráðherra til þess að útskýra þetta fyrir mér, hvort sem það er núna hér í þingsal eða á öðrum vettvangi.