veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.
Virðulegur forseti. Það er nú svo að það er ekki hægt að afturkalla þegar útgefin leyfi nema að baka ríkissjóði bótaskyldu. Það eru þær upplýsingar sem við höfum í ráðuneytinu. Jafnframt að þetta brjóti gegn lögmætum væntingum og lögmætisreglunni. Leyfin eru fengin í góðri trú og það er ákveðinn fyrirsjáanleiki og gagnsæi sem verður að gilda í opinberri stjórnsýslu, virðulegur forseti. Þetta eru hrein og hefðbundin lagaskil í frumvarpinu. Við getum sett íþyngjandi reglur til framtíðar en ekki afturvirkt. Þetta eru þær upplýsingar sem ég hef úr mínu ráðuneyti þannig að ef hv. þingmaður er með ríkan vilja til að greiða bætur til handa þeim sem hafa fengið þessi leyfi og það sé í anda jafnaðarmannastefnunnar þá eru það alveg nýjar upplýsingar fyrir okkur í Framsókn. En við skulum alveg hafa það á hreinu að hér er mjög mikilvægt frumvarp þar sem er verið að taka á starfsemi sem hefur ekki verið að greiða ákveðna skatta eins og henni ber að gera. Ég verð að segja að það kemur dálítið á óvart hvernig hv. þingmaður nálgast viðfangsefnið því að næstu skrefin er þau að taka miklu heldur ákveðin skref til þess að ná enn betur utan um þetta mál sem er frekara átak í eftirliti með þessari starfsemi. Eins höfum við verið að skoða hvort það eigi að hækka hámarkssektargreiðslur og annað slíkt. Þannig að ég vísa því algjörlega á bug hér að við séum í fyrsta lagi að vernda einhverja ákveðna hópa eða (Forseti hringir.) að hér sé ekki um að ræða einhverjar breytingar því að það er af og frá, eins og hv. þingmaður hlýtur að átta sig á eftir að hún er búin að lesa frumvarpið.