154. löggjafarþing — 70. fundur,  12. feb. 2024.

meðferð sakamála, meðferð einkamála, gjaldþrotaskipti o.fl.

691. mál
[16:35]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála, lögum um meðferð einkamála og lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. Á undanförnum misserum hefur dómsmálaráðuneytið unnið að því með stofnunum á málefnasviði þess að gera réttarvörslukerfið stafrænt og er réttarvörslugátt samheiti yfir verkefni sem unnið hefur verið að í því skyni. Hefur réttarvörslugátt til að mynda verið notuð til að miðla gögnum í rannsóknarmálum lögreglu fyrir héraðsdómstólum. Með þessu frumvarpi er stigin enn stærri skref á stafrænni vegferð réttarvörslukerfisins með því að ryðja úr vegi hindrunum í gildandi löggjöf og skapa þannig forsendur fyrir nýtingu tæknilausna í auknum mæli.

Markmið breytingartillagnanna eru í grundvallaratriðum þríþætt. Í fyrsta lagi að einfalda málsmeðferð fyrir dómstólum og skapa grundvöll til nýtingar notendavænna tæknilausna án þess að gæðum og réttaröryggi verði teflt í tvísýnu. Í öðru lagi er ætlunin að bæta aðgengi að dómstólum og einfalda samskipti milli þeirra sem koma að meðferð mála, m.a. lögreglu, auk þess að auka skilvirkni og hagkvæmni í starfsemi þeirra sem vinna eftir réttarfarslöggjöfinni. Í þriðja lagi er markmiðið að draga úr sóun og neikvæðum umhverfisáhrifum í réttarvörslukerfinu með því að skapa forsendur til að draga úr bílferðum og notkun pappírs.

Helstu efnisatriði frumvarpsins eru eftirfarandi: Lagt er til að fest verði í lög um meðferð einkamála og lög um meðferð sakamála almennt ákvæði sem taki af öll tvímæli um að stafræn og rafræn málsmeðferð í réttarvörslukerfinu sé jafngild því að hún væri viðhöfð á pappír. Sömuleiðis er horfið frá því að tiltaka í lögum fjölda eintaka málsgagna og undirritun þeirra með eigin hendi. Þá eru lagðar til orðalagsbreytingar sem betur þykja lýsa tæknilega hlutlausri málsmeðferð. Þá er lagt til að festa í sessi, í almenn ákvæði laga um meðferð einkamála og laga um meðferð sakamála, heimildir til að nota fjarfundarbúnað við vissar aðstæður við rekstur slíkra mála fyrir dómi og við skýrslugjöf hjá lögreglu. Frá upphafi kórónuveirufaraldurs hafa heimildir til rafrænna gagnasendinga og notkunar fjarfundarbúnaðar við rekstur dómsmála verið til bráðabirgða í þessu lögum. Þær heimildir voru síðast framlengdar til 30. júní á þessu ári með lögum nr. 98/2023. Í ljósi góðrar reynslu af því fyrirkomulagi hefur verið unnið að því undanfarin misseri að koma þeim í varanlegt form. Afrakstur þeirrar vinnu birtist nú í frumvarpi þessu.

Ríkt tillit hefur verið tekið til meginreglna um réttláta málsmeðferð, samanber 70. gr. stjórnarskrárinnar og 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Gildir það bæði um einka- og sakamál, en hefur sýnu meiri þýðingu í sakamálum, enda grundvallaratriði að réttindi sakaðra manna séu tryggð við rannsókn og meðferð máls fyrir dómi, jafnvel þótt notast sé við fjarfundarbúnað.

Þá er í frumvarpinu sömuleiðis lagt til að heimilt verði að birta ákærur og önnur gögn sem sami birtingarháttur gildir um í stafrænu pósthólfi í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda á vefnum island.is. Nánar tiltekið er lagt til að ákæra teljist réttilega birt í stafrænu pósthólfi þegar viðkomandi hefur staðfest móttöku hennar þar. Þessi aðferð þykir sameina kosti þess að gera birtingar stafrænar, svo sem varðandi kostnað og tímasparnað, án þess að vegið sé að réttaröryggi, einkum rétti sakaðra manna til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi, samanber fyrrnefnd ákvæði stjórnarskrár og mannréttindasáttmála Evrópu.

Jafnframt er með frumvarpinu lagt til aukið samræmi fyrir öll þrjú dómstigin um þau ákvæði laga sem varða dóma- og þingbækur, í málum sem rekin eru eftir ákvæðum laga um meðferð einkamála og laga um meðferð sakamála. Þá eru lagðar til breytingar á lögum um meðferð sakamála um nafnleynd lögreglumanna og annars starfsfólks lögreglu við skýrslugjafir sakaðra manna og vitna við rannsókn sakamála og meðferð slíkra mála fyrir dómi. Loks er í frumvarpinu mælt fyrir um þá breytingu á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl., að heimilt verði að lýsa kröfu fyrir skiptastjóra hvort heldur sem er með stafrænum, rafrænum eða bréflegum hætti, í stað þess að kröfulýsing verði að berast á pappír líkt og í dag.

Hæstv. forseti. Nú hef ég farið yfir helstu atriði frumvarpsins og meginmarkmiðs þess, en að öðru leyti vísast til greinargerðar frumvarpsins og skýringa við einstök ákvæði þess.

Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar og 2. umræðu.