154. löggjafarþing — 70. fundur,  12. feb. 2024.

meðferð sakamála, meðferð einkamála, gjaldþrotaskipti o.fl.

691. mál
[16:41]
Horfa

Brynhildur Björnsdóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir yfirferð yfir þetta um margt góða frumvarp. Það er eitt sem mig langar til að vekja athygli á og það er meðferð rafrænna gagna í sakamálum. Nú bar það hátt í umræðu, minnir mig í síðustu viku eða þar áður, að kona komst að því eftir að hún hafði kært kynferðisofbeldi að viðkvæmar myndir sem teknar voru af henni á neyðarmóttöku höfðu verið sendar lögmanni ákærða í því máli á rafrænu formi þar sem hann hefði getað nýtt þær eins og honum hentaði. Slík gögn eru gríðarlega viðkvæm, frú forseti, og mjög mikilvægt að haft sé í huga að vernda þau með öllum tiltækum ráðum. Því vil ég beina þeirri fyrirspurn til hæstv. dómsmálaráðherra hvort hægt sé með einhverjum ráðum að koma því að að réttur lögmanna og ákærðra til slíkra gagna verði að einhverju leyti takmarkaður þannig að þau gögn séu ekki bara send með opnum tölvupósti eða á einhvern slíkan hátt. Þetta kemur kannski ekki beint flutningi þessa frumvarps við en það er afar mikilvægt að við verndum brotaþola kynferðisofbeldis, manneskjur, oftast konur, sem löggæsluyfirvöldum ber sérstaklega að vernda en ekki brjóta á með því að senda viðkvæmar myndir án þeirra leyfis og jafnvel vitneskju.