meðferð sakamála, meðferð einkamála, gjaldþrotaskipti o.fl.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra svörin. Ástæða þess að ég kom hérna upp var sú að hér stendur að tilkynningu sem á grundvelli laga þessara er afhent eða send milli þeirra sem aðkomu eiga að máli er heimilt að miðla á rafrænu eða stafrænu formi. Við vitum náttúrlega að þegar kemur til þess að túlka lög er orðalagið það sem skiptir máli oft og tíðum. Þess vegna er lögfræði oft og tíðum nefnd list orðsins frekar en nokkurs annars. Ég geri mér grein fyrir því að þetta frumvarp snertir ekki þessi mál beint og ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir að lýsa yfir vilja til þess að tryggja að slík viðkvæm gögn séu örugg, en við getum væntanlega líka skoðað þetta í allsherjar- og menntamálanefnd þegar þetta kemur til skoðunar hjá okkur. Ég vil bara ítreka það að það er svo mikilvægt að gögn af þessum toga séu varin þannig, með friðhelgi brotaþola í huga, að enginn möguleiki sé á því að þau fari í einhvers konar umferð eða séu aðgengileg nema bara í mjög þröngu og takmörkuðu rými, hvort sem það er stafrænt rými eða jarðbundið rými.