umboðsmaður sjúklinga.
Forseti. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem við leggjum fram þessa tillögu og sannarlega er ekki minni þörf á því en áður. Vonandi er þetta í síðasta skipti og vonandi gengur þetta í gegn. Mig langar til að tæpa á grein sem birtist í fjölmiðlum 28. janúar síðastliðinn þar sem maður skrifar um reynslu sína af því að eiginkona hans lést á heimili þeirra 18 klukkustundum eftir að hafa verið útskrifuð af slysadeild Landspítalans eftir rifbeinsbrot. Með leyfi forseta:
„Þrátt fyrir þann skamma tíma sem leið frá útskrift af slysadeild og þar til hún lést var ekki gerð nein rannsókn á hvort rekja mætti andlát hennar til þeirrar meðferðar sem hún fékk — eða fékk ekki — á slysadeild Landspítalans. Með tölvupóstum til rannsóknarlögreglu fór ég fram á að það yrði athugað. Við þeim póstum fékk ég engin svör. Engar leiðbeiningar fékk ég um á hvers höndum slík rannsókn gæti verið. Þrátt fyrir ítrekaða leit að svörum stóðu ég og ástvinir hennar uppi án nokkurra skýringa á hvað hefði valdið dauða hennar.“
Hvað gerir einstaklingur sem vill fá svör og fær þau ekki úr kerfinu sem ætti að geta veitt þau og enginn getur svarað því hvar svörin er að fá? Jú, ég ætla að fá að grípa aftur niður í greinina, með leyfi forseta:
„Ég ákvað því nokkru síðar að hrinda sjálfur af stað rannsókn. Ég réð til þess lækni og lögfræðing hjá Medical Law ehf. Árið 2019 leiddi sú rannsókn í ljós að á slysadeild Landspítalans hafði átt sér stað „ófullnægjandi og röng greining og meðferð ásamt ótímabærri og rangri ákvörðun um útskrift”, eins og segir í gögnum Sjúkratrygginga Íslands frá 17. apríl 2019.“
Þarna er augljóslega um að ræða einstakling sem hefur þó þann styrk, þrátt fyrir það áfall sem hann hefur orðið fyrir, þann tíma og þá eirð að geta farið af stað í slíka rannsókn sjálfur. Það er auðvitað algerlega óbærilegt að í velferðarríki á borð við Ísland þurfi fólk sjálft að fara af stað til að rannsaka nokkuð sem ríkið sjálft ætti að sjá um. Í kjölfarið voru viðurkennd mistök af hálfu ríkisins. Þarna er um undantekningu að ræða. Það er ekki hægt að ganga út frá því að fólk sem er að berjast við bæði tilfinningalegt álag við það að missa ástvin og veraldlega álagið sem því fylgir þurfi á sama tíma að leggja alla sína orku og allan sinn tíma í það að komast að því hvað raunverulega gerðist og hver réttindi þess eru í því kerfi sem við höfum búið því.
Embætti umboðsmanns sjúklinga er gríðarlega brýnt. Ég veit að fyrir einhverjum þingmönnum, mögulega einhverjum þingmönnum meiri hlutans sérstaklega, er þetta enn eitt embættið og þessari tillögu okkar hefur verið svarað með þeim hætti að þau séu ekki hlynnt því að koma á fót enn öðru bákninu. Vandinn er sá að þarna ertu með einstaklinga sem eru ekki í nokkurri stöðu til þess að sækja réttindi sín, leita réttinda sinna og fá þeim fullnægt. Það er auðvitað ekki til neins að hafa réttindi þegar fólk hefur enga leið til að njóta þeirra. Það gefur augaleið.
Ég ætla að ljúka máli mínu með því að grípa aftur niður í greinina vegna þess að orð Einars Magnúsar, sem skrifar greinina, eru mjög skýr og kraftmikil að mínu mati. Með leyfi forseta:
„Með þessum skrifum vona ég að þeir sem málið varðar taki þetta til sín og breyti háttum sínum, virðingu, orðalagi og afgreiðslu mála. Ég bið einfaldlega um að aðstandendur þurfi ekki á sínum sárustu stundum að upplifa neitt þessu líkt.
[…]
Embætti umboðsmanns sjúklinga gæti verið sá aðili sem stæði vörð um rétt, þarfir og hagsmuni sjúklinga og þeirra nánustu. Það á ekki að vera margra ára þrotlaus vinna sjúklinga og aðstandenda að leita svara og réttar síns. Skjótar lyktir mála er mikilvægur þáttur í að loka sárinu og draga sorgarferlið ekki á langinn.“
Ég held að við ættum öll hér í þessum þingsal að geta sammælst um mikilvægi þessa máls og þá hagsmuni sem við sem samfélag höfum af því að fólk geti leitað réttar síns og notið þeirra réttinda sem því ber, fólk sem er í einna viðkvæmastri stöðu í samfélaginu okkar, fólk sem er veikt og hefur ekki líkamlega og gjarnan ekki andlega burði til þess að sækja réttindi sín.