skaðabótalög.
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á skaðabótalögum, nr. 50/1993, launaþróun. Auk mín eru á þessu frumvarpi Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Inga Sæland, Jakob Frímann Magnússon og Tómas A. Tómasson eða þingflokkur Flokks fólksins eins og hann leggur sig.
1. gr.
1. málsl. 1. mgr. 15. gr. laganna orðast svo: Fjárhæðir bóta, sem greindar eru í 3. gr., 4. gr., 3. og 4. mgr. 7. gr. og 2. málsl. 1. mgr. 13. gr., breytast mánaðarlega í hlutfalli við breytingar sem verða á launavísitölu frá gildistöku laganna.
2. gr.
29. gr. laganna orðast svo: Fjárhæðir samkvæmt lögum þessum eru miðaðar við launavísitölu eins og hún var 1. júlí 1993 (131,3) og taka þær sömu breytingum og mælt er fyrir um í 15. gr.
3. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.
Frumvarp þetta var flutt á 151., 152. og 153. löggjafarþingi (58. mál) og er nú lagt fram að nýju. Efni þess á rætur að rekja til frumvarps sem lagt var fram á 150. löggjafarþingi (430. mál) en hlaut ekki afgreiðslu. Ein umsögn barst um frumvarpið á 153. löggjafarþingi, frá Alþýðusambandi Íslands, sem lýsti yfir stuðningi við frumvarpið og sagði það stuðla að því meginmarkmiði skaðabótalaga að gera tjónþola eins setta og þeir voru fyrir tjón. Efni frumvarpsins er að mestu óbreytt, en þó er gerð breyting á 1. gr. frumvarpsins, þar sem nú er lagt til að í 15. gr. skaðabótalaga verði vísað til 4. mgr. 7. gr. sömu laga, til viðbótar við þær greinar sem hún fjallar þegar um, sbr. umfjöllun hér að neðan.
Frumvarp þetta var flutt á 131. og 152. og 133. löggjafarþingi, 58. mál, og er nú lagt fram á ný nýju efni. Þess á rætur að rekja til frumvarps sem lagt var fram á 150. löggjafarþingi, 430. mál en hluta, en hlaut ekki afgreiðslu. Ein umsögn barst um frumvarpið á 153. löggjafarþinginu frá Alþýðusambandi Íslands sem lýsti yfir stuðningi við frumvarpið og sagði: Það stuðla að því meginmarkmiði skaðabótalaganna að gera tjónþola eins setta og þeir væru fyrir tjón. Efni frumvarpsins er að mestu óbreytt, en þó er gerð breyting á 1. gr. frumvarpsins, þar sem nú er lagt til að í 15. gr. skaðabótalaga verði vísað til 4. mgr. 7. gr. sömu laga, til viðbótar við þær greinar sem hún fjallar þegar um, sbr. umfjöllun hér á eftir.
Bótafjárhæðir skaðabótalaga breytast í hlutfalli við breytingar sem verða á lánskjaravísitölu en sú vísitala er lítið notuð við útreikning á verðlagi. Í ljósi þeirrar þróunar sem orðið hefur í verðlagsmælingum verður að teljast brýn þörf á að lögum um skaðabætur verði breytt svo að fjárhæðir þeirra taki breytingum í hlutfalli við breytingar á þeim mælikvörðum sem almennt eru notaðir við mat á verðlagi. Þar koma helst tveir mælikvarðar til skoðunar, annars vegar vísitala neysluverðs og hins vegar launavísitala. Tilgangur skaðabóta er að gera tjónþola eins settan og ef hann hefði ekki orðið fyrir tjóni og miða skaðabótalögin við árslaun í því sambandi, sbr. 1. mgr. 6. gr. og 7. gr. laganna. Þegar örorka tjónþola er metin til frambúðar er aðallega horft til þess hvaða áhrif örorka hefur á getu hans til að afla tekna. Því er ástæða til að miða við launavísitölu þegar fjárhæðir skaðabóta eru ákvarðaðar til frambúðar. Þegar er miðað við launavísitölu þegar árslaun eru ákvörðuð almennt, sbr. 1. mgr. 7. gr. skaðabótalaga, en lágmarkslaun þróast til samræmis við lánskjaravísitölu og ekki er tiltekið í 15. gr. skaðabótalaga hvort hámarkslaun skuli taka breytingum til samræmis við verðlagsþróun. Þess ber að geta að í apríl 1995 var hætt að nota lánskjaravísitölu til þess að verðtryggja nýjar fjárskuldbindingar og vísitala neysluverðs notuð þess í stað til verðtryggingar.
Lánskjaravísitalan stóð í 3.282 stigum við gildistöku skaðabótalaga, árið 1993, en stóð í 11.760 stigum í ágúst 2023. Fjárhæðir skaðabótalaga hafa því hækkað um 258% frá gildistöku þeirra. Í dag er lágmarksviðmið árslauna fyrir 66 ára og yngri 4.300.000 kr. og 1.433.500 kr. fyrir 74 ára og eldri, sbr. 3. mgr. 7. gr. laganna. Þær fjárhæðir eru talsvert lægri en lægstu launakjör á almennum vinnumarkaði. Launavísitalan stóð í 131,3 stigum við gildistöku skaðabótalaga en stóð í 949,7 stigum í júní 2023 og hefur því hækkað um 623%, talsvert meira en lánskjaravísitalan á sama tímabili. Eftir því sem laun hafa hækkað umfram verðlag hefur dregið úr þeirri vernd sem skaðabótalögin veita fólki sem verður fyrir líkamstjóni og hefur ekki stundað fulla atvinnu á síðustu þremur árum fyrir slysdag. Þetta eru m.a. ungir einstaklingar sem ekki hafa unnið fulla vinnu, heimavinnandi einstaklingar og eldri borgarar.
Þessir hópar njóta því ekki sömu verndar og skaðabótalögin tryggðu fólki við gildistöku. Ef fjárhæðir laganna eru uppfærðar til samræmis við launavísitölu hækkar lágmarksviðmið 3. mgr. 7. gr. laganna fyrir 66 ára og yngri úr 4.300.000 kr. í 8.679.500 kr. Fyrir 74 ára og eldri myndi lágmarksviðmið hækka úr 1.433.500 kr. í 2.893.000 kr. Þessar tölur sýna að lágmarksvernd laganna hefur minnkað verulega undanfarna áratugi með tilliti til launaþróunar og að lögin bæta ekki skert aflahæfi tjónþola að fullu þegar lágmarksviðmiðin endurspegla ekki launaþróun í samfélaginu. Ef markmiðið er að bæta upp skert aflahæfi tjónþola verður að tengja fjárhæðir laganna við launaþróun.
Í 1. gr. frumvarpsins er lögð til breyting á 1. málsl. 1. mgr. 15. gr. laganna þess efnis að framvegis muni fjárhæðir þeirra lagaákvæða sem þar eru tilgreind þróast til samræmis við breytingar á launavísitölu. Jafnframt er lagt til að árétta að hámarksviðmið árslauna skuli einnig taka breytingum til samræmis við launaþróun, en sú málsgrein laganna sem fjallar um hámarksviðmið árslauna er ekki tiltekin í 15. gr. að því er virðist fyrir mistök við lagabreytingar árið 1999. Í 2. gr. frumvarpsins er áréttað að fjárhæðir laganna skuli breytast til samræmis við launavísitölu eins og hún var ákvörðuð við gildistöku skaðabótalaganna, og er því um að ræða sama viðmið, hvað dagsetningu varðar, og í gildandi lögum.
Verði frumvarp þetta samþykkt yrðu ákvæði skaðabótalaga til þess fallin að veita þeim sem hafa lágar tekjur sambærilega vernd og þau gerðu við gildistöku laganna
Það segir sig sjálft að það er auðvitað alveg stórfurðulegt að það skuli vera hægt, með einstakling 66 ára eða yngri, hafa tölurnar nærri helmingi lægri heldur en eðlilegt ætti að vera, bara með því að vera með ranga vísitölu, uppreikna ekki hlutina samkvæmt launum vegna þess að þarna erum við að tala um laun. Löggjafinn á að sjá til þess að þetta sé rétt vegna þess að það segir skýrt í skaðabótalögunum að það eigi að bæta tjón að fullu, ekki ofbæta, ekki vanbæta heldur bæta tjónið að fullu. Á meðan við höfum ekki forsendurnar réttar til að gera það þá er ekki verið að bæta tjón viðkomandi að fullu.
Hvað þýðir þetta á mannamáli? Það er verið að gjaldfella vinnu hóps fólks sem gæti lent í slysum og borga því meira en helmingi minna en það ætti að fá. Ofan á þetta bætist að það er ekki auðhlaupið fyrir einstakling sem lendir í slysi að berjast við lögfræðingaher tryggingafélaganna og þeirra góðu fjárhagslegu stöðu. Tryggingafélögin nota þá aðferð þegar viðkomandi lendir t.d. í bílslysi að tjón er metið og ákveðin upphæð er greidd inn á svokallaðan bótasjóð sem er tryggingarskuld. Þessi upphæð verður síðan inni í þessum bótasjóði þangað til tjónið hefur verið greitt upp. Því miður verður í mörgum tilfellum svo til öll upphæðin alltaf þarna inni. Þetta var kallað fé án hirðis og við vitum hvernig það fór í hruninu.
Því miður er staðreyndin sú að fólk fær ekki þær bætur sem það á rétt á þegar það lendir í slysum. Alls konar aðferðum er beitt til að sjá til þess að fólk nái ekki fram rétti sínum gagnvart tryggingafélögunum, t.d. á fólk mjög erfitt með að fá gjafsókn. Fólk hefur ekki efni á að fara í mál við tryggingafélögin og því lengur sem málið dregst þeim mun erfiðara verður fyrir viðkomandi að berjast fyrir því að fá fullar bætur og oft samþykkja einstaklingar í nauðvörn tilboð tryggingafélagsins sem er langt fyrir neðan það sem eðlilegt getur talist.
Það að upphæðirnar skuli vera orðnar nærri helmingi lægri en þær eiga að vera sýnir líka að það er eitthvað mikið að þessu kerfi og spurningin er bara: Eru skaðabótalögin eins og þau eru í dag lögleg? Ég set spurningarmerki við það vegna þess að tilgangur skaðabótalaga er að bæta, eins og kemur fram, það fjártjón sem fólk verður fyrir vegna slyss þannig að það standi ekki verr eftir. Staðan á ekki að vera betri en fólk á alls ekki að standa verr en eins og þetta er í dag stendur fólk helmingi verr eftir miðað við þessar tölur þannig að þetta er spurning um hvernig í ósköpunum þetta getur staðið svona og hvers vegna enginn hefur gert neitt í þessum málum.
Við verðum að átta okkur á því að við erum að miða við 1993. Það er löngu tímabært að taka þessi skaðabótalög til endurskoðunar. Einhverra hluta vegna kemur dómsmálaráðherra eftir dómsmálaráðherra sem á að sjá um, það er í verkahring ráðherra, að þessi lög séu rétt en gerir ekki neitt. Hagsmuni hverra er þá viðkomandi dómsmálaráðherra að verja? Alveg örugglega ekki fórnarlambanna, það er séð til þess að þau þagni, heldur einbeitir hann sér að tryggingafélögunum og vonar að fórnarlömbin þagni, að lömbin þagni.
Hvað þýðir það á mannamáli þegar tryggingafélögin dæla peningum inn í bótasjóði og þurfa ekki að borga út nema brot af því sem þangað fer inn? Það þýðir að þar safnast fyrir gífurlegir fjármunir. Þá fjármuni geta tryggingafélögin nýtt sér til góðs í ákveðnum fjárfestingum og vextina af þeim. Þessir bótasjóðir eru aldrei gerðir upp á Íslandi. Þeir bólgna bara út og við sáum meira að segja í hruninu á sínum tíma að bótasjóður fór á flakk um heiminn.
Ég spyr: Hvers vegna eru þessi lög þannig að við gerum ekki eins og siðmenntaðar þjóðir og gerum þessa bótasjóði upp? Sjóðirnir eru til að bæta tjón fólks, ekki til að leyfa tryggingunum að leika sér og gambla með þessa peninga á markaði. En einhverra hluta vegna kemur ríkisstjórn eftir ríkisstjórn, dómsmálaráðherra eftir dómsmálaráðherra, og gerir ekkert í málinu. Hvers vegna ekki? Þetta er mjög sorglegt og segir okkur líka að það er eins gott að fólk átti sig á því á móti að ef það lendir í slysi á það rétt á að fá bætur? En fær fólk bætur? Nei, það er engin spurning. Ég segi í fyrsta lagi að eins og staðan er í dag er það mjög ólíklegt. Í öðru lagi mun það taka langan tíma. Í þriðja lagi eru líkurnar allar á því að viðkomandi endi í örorku. Ef þessar fjárhæðir skila sér eins og þær eiga að gera til þeirra sem eiga rétt á þeim er ég viss um að stór hópur þess fólks sem lendir á örorku gæti nýtt þá fjármuni til að breyta um vinnuvettvang, fara í nám, gera eitthvað annað, finna sér aðra vinnu. En því er ekki svo fyrir að fara. Það ætti ekki að þurfa að hafa fjárhagsáhyggjur en það bara fylgir því ef fólk lendir í slysum. Ef þetta er alvarlegt bílslys og fólk þarf að fara í aðgerðir þá tekur þetta ótrúlega langan tíma í gegnum kerfið, allt of langan tíma.
Þess vegna segi ég að okkur beri skylda til þess á Alþingi að sjá til þess í eitt skipti fyrir öll að tekið verði á þessu máli. Ég vona heitt og innilega að þetta mál fái framgang og ég reikna með að það fari til allsherjar- og menntamálanefndar og ég veit og vona heitt og innilega að það verði til þess að tekið verði á þessu þar. Ég get ekki ímyndað mér annað, miðað við þau orð sem ég hef heyrt. Það hefur verið talað um að það eigi að endurskoða þessi lög en það verður að hætta að tala um það, það verður að fara að ske. Það er auðvitað alveg með ólíkindum að við skulum vera með svona lög og það segir sig sjálft að þessar fjárhæðir eiga að endurspegla nákvæmlega launin í dag. Við getum ekki verið að miða við einhverjar 100.000 kr. á mánuði þegar lágmarkslaun í landinu eru komin upp í um 400.000 kr. Það segir sig sjálft að þarna er bara himinn og haf á milli og við verðum að breyta þessu. Þetta getur ekki virkað svona. Þetta gengur hreinlega ekki upp.
Ég vona heitt og innilega að það verði tekið á þessum málum í eitt skipti fyrir öll og við sjáum nú loksins til þess að það verði farið að gera eitthvað í þessum málum vegna þess að við erum reglulega með fólk sem lendir í því að verða fyrir tjóni og það er skelfilegt. Það er alveg nógu erfitt fyrir fólk að lenda í slysum, lenda í slæmu líkamstjóni þótt ekki þurfi líka að berjast við fjárhagsáhyggjur, tryggingarisa sem hafa nægt fjármagn, nóg af lögfræðingum og vita það líka á sama tíma að það er ekki að fá nema brotabrot af því sem það á að fá. Lögin eru byggð þannig upp að það er búið að sjá til þess að viðmiðið sé meira en helmingi minna og síðan þegar það er margfaldað með þeirri upphæð sem kemur má fólk þakka fyrir að fá kannski einn fjórða af því sem það ætti að fá. Þá fær fólk tjón sitt ekki bætt eins og það ætti að fá. Það er langt frá því. Það fær þar af leiðandi ekki sínar bætur. Ef tilgangur skaðabótalaganna er að bæta fólki það fjárhagslega tjón sem það verður fyrir þá ber ríkisstjórninni að sjá til þess í eitt skipti fyrir öll að allar fjárhæðir séu réttar og að fólk fái þær bætur sem það á rétt á. Það þarf líka að tryggja það að fólk sem lendir í þessum slysum hafi þá aðstöðu að það fái gjafsókn og geti barist við tryggingafélögin ef á þarf að halda.