starfsemi stjórnmálasamtaka.
Herra forseti. Ég veit ekki alveg hvort hv. þingmaður er að lesa sama frumvarp og ég, en það snýst ekkert í þessu um einhverja ríkisvæðingu, ekki neitt, þannig að sá hluti gagnrýninnar skiptir engu máli hvað þetta frumvarp varðar, svona til að halda því til haga. Rökin eru í rauninni mjög einföld: Hvaða störfum sem fólk sinnir í atvinnulífinu eða á fyrirtæki eða hvað svo sem það er, þá styrkir það bara frá sínum prívat og persónulega bankareikningi. Er það ekki mjög eðlileg krafa í rauninni í staðinn fyrir að einhverjir sem eiga fyrirtæki saman ákveði að nota fyrirtækið til að styðja einhver stjórnmálasamtök, að þeir geri það bara í sitthvoru lagi, út af fyrir sig? Það að troða einhvern veginn fjármögnun stjórnmálasamtaka í gegnum lögaðila, þar sem sögulega séð er möguleiki á spillingu, við skulum bara hafa það algerlega á hreinu — það virkar dálítið þannig að það sé verið að kaupa ákveðið aðgengi að völdum í gegnum svona framlög. Það er bara mjög auðvelt að rekja svoleiðis tengsl, alla vega möguleika á slíkum tengslum og við ættum að passa okkur á því. Það er ekki séns á einhvers konar spillingarmöguleikum í ríkisframlögum t.d. til stjórnmálaflokka. Lýðræði kostar sitt þegar allt kemur til alls. En eins og ég segi: Þetta frumvarp snýst ekkert um ríkisvæðingu. Það snýst bara um það að hver einn og einasti einstaklingur geti bara styrkt stjórnmálasamtök einu sinni en ekki tvisvar.