154. löggjafarþing — 70. fundur,  12. feb. 2024.

starfsemi stjórnmálasamtaka.

119. mál
[18:38]
Horfa

Flm. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Herra forseti. Það er mjög merkilegt að gera ráð fyrir því að það sem virkar annars staðar eða virkar ekki annars staðar virki einhvern veginn öðruvísi hér. Mér finnst það mjög áhugavert. Og svona til að slá á ótta hv. þingmanns varðandi fjáröflunarleiðir stjórnmálaflokkanna þá er fullt af stjórnmálaflokkum sem taka ekki við neinum eða mjög litlum fjárframlögum frá lögaðilum. Þau reka sína kosningabaráttu. Kannski eru þeir flokkar sem eru að safna þessum gríðarlega háu framlögum frá lögaðilum einfaldlega bara að eyða of miklum pening. Ef eitthvað er, ef fólk vill taka einhvern snúning á þetta, þá snýst þetta frumvarp einmitt frekar um að minnka peninga til stjórnmálaafla.