starfsemi stjórnmálasamtaka.
Virðulegur forseti. Já, það er auðvitað bara stjórnmálaflokkum algerlega í sjálfsvald sett að vera með sína innri stefnu og ákveða að taka ekki á móti fjármununum frá lögaðilum. En mér fyndist mjög óæskilegt að festa það í lög með þeim rökum sem ég hef nefnt hér.
En ef ég ætla að reyna að finna punkt til að vera sammála hv. þingmanni um þá gæti ég mögulega verið sammála honum í því að kosningabarátta kostar allt of mikið og stjórnmálaflokkar eru farnir að eyða allt of miklum fjármunum í kosningabaráttu. Ég held að ástæðan sé að þeir eru bara með allt of miklar greiðslur frá hinu opinbera og það er nákvæmlega … Þannig að við erum í rauninni með lögum frá Alþingi að pína skattgreiðendur til að leggja inn í stjórnmálastarfið (Gripið fram í.) í staðinn fyrir að gefa einstaklingum það frelsi að ákveða sjálfir hvað og hversu mikið þeir greiða til stjórnmálafélaga. Í grunninn getum við verið og erum sammála um hversu mikilvægir stjórnmálaflokkar eru fyrir lýðræðið, ofboðslega mikilvægir, en það hvernig okkur hefur tekist að ríkisvæða stjórnmálaflokka á síðustu árum er, held ég, komið algjörlega úr böndunum. Ég tala ekki um þegar við horfum á það að flokkar sem fengu einhver örfá prósent í kosningum og náðu ekki einu sinni inn á þing geta verið með starfsmenn og rekið starfsemi í mörg ár fyrir framlög frá skattgreiðendum. Mér finnst þetta algerlega komið út fyrir öll mörk og það má svo sannarlega taka til í því hvað stjórnmálaöfl eru farin að eyða miklum fjármunum og orðin í rauninni mikið bákn innan báknsins vegna þess að þau fá svo há ríkisframlög. (Gripið fram í.)