154. löggjafarþing — 71. fundur, 13. feb. 2024.
tilhögun þingfundar.
Forseti vill geta þess að á eftir atkvæðagreiðslum um 2. dagskrármálið, staðgreiðslu opinberra gjalda, ráðgerir forseti að freista þess að ljúka síðari umræðu um 3. dagskrármálið og atkvæðagreiðslum um það einnig. Eftir það verður settur nýr fundur svo ljúka megi atkvæðagreiðslum eftir 3. umræðu um staðgreiðslu opinberra gjalda áður en umræður um næstu dagskrármál hefjast.