Störf þingsins.
Hæstv. forseti. Við lifum á viðsjárverðum tímum sem geta ógnað þjóðaröryggi Íslands með margvíslegum hætti. Lítil herlaus þjóð í Norður-Atlantshafi ákvað fyrir 75 árum að kaupa sér öryggistryggingu með aðild að Atlantshafsbandalaginu, varnarbandalagi ríkja sem teljast jafnan lýðræðisríki þar sem mannréttindi eru í hávegum höfð. Ísland gerði líka varnarsamning við Bandaríkin og leyfði hersetu í meira en hálfa öld og nú viðbúnað herafla NATO á Miðnesheiði, loftrýmisgæslu og fleira. Það er því ástæða til að hlusta af athygli þegar fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi frambjóðandi, Donald Trump, segist ekki skuldbundinn til að verja aðildarríki NATO, a.m.k. ekki þau sem verji minna en 2% af þjóðarframleiðslu til varnarmála.
Ég er ekki ein af þeim forseti sem afgreiðir þessar yfirlýsingar sem léttvægar eða einungis til heimabrúks. Það er t.d. augljóst að nýjasta aðildarríki NATO, Finnland, tekur stöðuna í Evrópu mjög alvarlega og það sama má segja um hin Norðurlöndin, en á bandaríki er, eins og kunnugt er, nú um stundir deilt harkalega um áframhaldandi stuðning við Úkraínu í stríðinu gegn Rússlandi. Ég verð því að segja eins og er, hæstv. forseti, að ég varð hissa á viðbrögðum formanns utanríkismálanefndar, Diljár Mistar Einarsdóttur, við útspili Trumps í sjónvarpinu í gærkvöldi. Þau vekja upp spurningar. Telja Sjálfstæðismenn 5. gr. stofnsáttmála NATO ekki hafa ótvírætt gildi þegar kemur að vörnum aðildarríkjanna? Telja Sjálfstæðismenn að aðildarríkin verði að setja 2% af þjóðarframleiðslu til varnarmála til að eiga rétt á skilyrðislausri samstöðu ríkjanna innan bandalagsins? Þetta eru grundvallaratriði í utanríkisstefnu Íslands. Hvað sem manni finnst um NATO þá eru þetta grundvallaratriði í utanríkisstefnu Íslands og við verðum að taka þessa umræðu hér af fullri alvöru. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)