Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Þær kringumstæður sem nú blasa við Grindvíkingum er mjög erfitt fyrir okkur að skilja og erfitt að setja okkur í þeirra spor. Í Kastljósi RÚV í gær voru viðtöl við unglinga frá Grindavík sem eru við nám í Laugalækjarskóla. Þar kom fram að þau voru mjög ánægð með að hafa getað haldið hópinn með vinum sínum og skólafélögum úr Grindavík. Það skein af þeim gleði og væntumþykja yfir því að hafa vini sína og kennara á sama stað í þessum aðstæðum vegna hamfaranna í Grindavík.
Hvað með öll hin börnin sem eru dreifð í 68 skóla í 34 sveitarfélögum? Kannski hefur það jafnvel valdið þeim hræðslu og pirringi að hafa ekki skólafélaga, vini eða ættingja hjá sér í þeim skólum sem þau eru í núna. Hugsanir þeirra, líðan og viðbrögð við þessum nýju aðstæðum í lífinu geta vegið að geðheilsu þeirra. Að lenda í þessum skelfilegu hamförum og missa ef til vill öll tengsl að mestu við fólkið sem þau þekkja og þykir vænt um veldur álagi og streitu. Er ekki kominn tími til að finna skóla fyrir börn úr Grindavík þannig að bæði börn og kennarar þeirra geti verið á einum stað en ekki í 68 skólum í 34 sveitarfélögum? Börn þurfa öruggt umhverfi og að upplifa jafnvægi og öryggi og að hafa ánægju í lífinu og þá sérstaklega til að geta aðlagast gjörbreyttum aðstæðum, öll í einum skóla með sínum kennurum. Með því komum við í veg fyrir þunglyndi og kvíða svo að börn og unglingar þurfi ekki að glíma við tilfinningalega streitu með tilheyrandi geðheilsuvanda sem veldur verulegri röskun á daglegu lífi þeirra og skerðir jafnvel varanlega þátttöku þeirra í heimilislífi, skóla og samfélaginu. Setjum börnin strax í forgang, svo allt hitt. En munum eitt: Ekkert um Grindvíkinga án Grindvíkinga. Leyfum þeim að ráða. Hlustum á þá. Tökum líka húsnæðisliðinn út úr vísitölunni núna. Verum ekki að byrgja brunninn eftir á, lærum af reynslunni. Ástandið er algerlega þannig að við eigum að sjá til þess að þessar aðstæður í Grindavík muni ekki valda meiri þenslu og hækkun stýrivaxta.