154. löggjafarþing — 71. fundur,  13. feb. 2024.

Störf þingsins.

[13:51]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Mig langar að ræða aðeins skilvirkni í opinberum rekstri og í rauninni líka í einkarekstri, sérstaklega þar sem kemur að sameiginlegum öryggissjónarmiðum í víðara samhengi, og kannski nánar tiltekið naumhyggju frekar en skilvirkni. Nú er staðan þannig t.d. í heilbrigðiskerfinu að þar sem á að vera 85% nýting á sjúkrarúmum er rúmlega 100% nýting. Það þýðir að þegar aukaálag er á heilbrigðiskerfinu er ekkert pláss. Það þýðir líka að í núverandi ástandi er álag á heilbrigðisstarfsfólk. Álag kostar. Sama má segja um menntakerfið. Þar eru kennarar með stóra bekki og um leið og það bætist eitthvað við, jafnvel bara einn eða tveir krakkar sem flytjast á milli hverfa eða eitthvað svoleiðis, þá er bara varla pláss. Þannig er þessi naumhyggja eða með öðrum orðum skilvirkni, innan sviga, að keyra kerfið eða keyra öryggi fólks á eins litlu og mögulegt er af því það er svo hagkvæmt, þannig spörum við pening, en með því búum við líka til álag, sérstaklega þegar það koma áföll eins og hafa dunið á okkur á Reykjanesskaganum að undanförnu, í Covid og oftar í rauninni. Ég held að við þurfum í alvörunni dálítið að hugsa þetta upp á nýtt, sérstaklega hvað opinbera reksturinn varðar, hvað heilbrigðiskerfið varðar, að líta ekki í naumhyggjuna og líta ekki í aurana þegar krónurnar vegna álags eru stærri.