154. löggjafarþing — 71. fundur,  13. feb. 2024.

Störf þingsins.

[13:58]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Í gær bárust fréttir af því að kröfugerð óbyggðanefndar vegna eyja, hólma og skerja hefði borist sveitarfélögum, eða öllu heldur, þetta kom í fréttir eftir að Eyjamenn höfðu vægast sagt hrokkið af hjörunum, eðlilega, yfir þeirri kröfugerð sem lögð var fram gagnvart þeim svæðum. Ég fór og skoðaði þessi gögn á heimasíðu óbyggðanefndar áðan og þar eru samanlagt kröfugerðir á hina ýmsu landshluta upp á 451 blaðsíðu. Við þingmenn Miðflokksins vöruðum mjög sterklega við þeirri breytingu sem gerð var á lögum um regluverk óbyggðanefndar á síðasta kjörtímabili og nú er að koma í ljós hverjar afleiðingarnar eru. Það virðist vera gengið fram með eins íþyngjandi og afgerandi hætti og nokkur kostur er. Bara stutt skoðun varðandi málefni Breiðafjarðar, sem dugar ekki minna en 167 blaðsíður, og eitthvað kostar þessi undirbúningsvinna — á 167 blaðsíðum er farið yfir kröfugerð fjármálaráðherra á hendur landeigendum í Breiðafirði. Bara svona lítið dæmi, Hvallátur, þar eru einar 200 eyjar og hólmar sem fjármálaráðherra ásælist sem landeigendur þar hafa talið í eigu sinni og fjölskyldna sinna um árhundruð. Heimaeyjarnar virðast fyrst og fremst vera látnar vera en það á ekki einu sinni við í sumum tilvikum. Mér sýnist á öllu að hér sé gengið freklega fram og áfram í þessari helstu eignaupptöku síðari tíma hjá hinu opinbera og ég hvet hæstv. fjármálaráðherra til að stíga skref til baka og láta af þessari dellu. Það var varað sterklega við þessu á síðasta kjörtímabili og nú eru þau varnaðarorð öll að raungerast.