Störf þingsins.
Herra forseti. Hér hefur verið minnst á óbyggðanefnd. Þess má geta að hún tók til starfa árið 1998. Nefndinni var ætlað að kanna að skera úr um hvaða landsvæði teljist til þjóðlendna, hver væru mörk þjóðlendna og eignarlanda bænda. Bændum var talin trú um að þetta væri þeim til hagsbóta. Bændur hafa verið hlynntir því að skýra óvissu en þeim var líka sagt að þetta yrði þeim að kostnaðarlausu. Ekki var staðið við það og fjölmargir bændur á lögbýlum hafa þurft að leggja út fyrir umtalsverðum kostnaði sem ekki hefur fengist til baka. Það stóð til að það tæki bara fáein ár að fara í þessi mál en þau eru nú orðin 26, árin. Á fjárlögum þessa árs fær nefndin 120 millj. kr. Þegar loksins hillti undir það að nefndin yrði lögð niður var ákveðið að færa henni auknar lagaheimildir svo að hún gæti snúið sér að sjávarjörðum og eyjum utan meginlandsins, eitthvað sem menn áttu alls ekki von á og var aldrei tilgangur þessarar vegferðar í upphafi.
Því miður er það svo að óbyggðanefnd hefur nú ákveðið að ásælast allar Vestmannaeyjar og Heimaey að hluta. Fyrir mér er það alveg nýtt að Eyjar séu óbyggðir. En það verður seint sagt að embættismenn skorti hugmyndaflugið. Aldrei hefur verið ágreiningur eða vafamál um eignarhald á landi í Vestmannaeyjum.
Herra forseti. Óbyggðanefnd mun fara erindisleysu til Eyja, erindisleysu sem kostar skattgreiðendur peninga og sendir röng skilaboð í samfélag sem hefur mátt þola margvíslegt mótlæti. Ég skora hér með á hæstv. fjármálaráðherra að stöðva þennan ófrið sem embættismenn óbyggðanefndar hafa efnt til við Eyjamenn.