154. löggjafarþing — 71. fundur,  13. feb. 2024.

fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Moldóvu.

558. mál
[14:11]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd utanríkismálanefndar fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um fullgildingu fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Moldóvu. Nefndin fjallaði um málið og fékk gesti á sinn fund eins og fram kemur í nefndaráliti sem liggur frammi.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til fullgildingar á fríverslunarsamningi milli EFTA-ríkjanna og Moldóvu sem undirritaður var 27. júní 2023 í Schaan í Liechtenstein. Í greinargerð með tillögunni kemur fram að fríverslunarsamningurinn við Moldóvu kveði á um gagnkvæma niðurfellingu, lækkun og bindingu tolla á iðnaðarvörur, sjávarafurðir og unnar og óunnar landbúnaðarvörur. Þannig muni tollar á hvers kyns sjávarafurðir og iðnaðarvörur, sem fluttar eru út frá Íslandi til Moldóvu, falla niður frá gildistöku samningsins og sama á við um tilteknar landbúnaðarvörur sem framleiddar eru hér á landi til útflutnings.

Þá kemur fram í greinargerð að útflutningur frá Íslandi til Moldóvu hafi verið lítill í gegnum tíðina þó að merkja megi aukningu undanfarin ár sem samanstendur nær alfarið af sjávarafurðum. Innflutningur frá Moldóvu hefur verið lítill. Með gagnkvæmri niðurfellingu og lækkun tolla skapi samningurinn forsendur fyrir auknum viðskiptum milli ríkjanna. Gerð samningsins feli einnig í sér stuðning EFTA-ríkjanna við viðleitni stjórnvalda í Moldóvu til vestrænnar samvinnu.

Að framansögðu virtu leggur nefndin til að tillagan verði samþykkt. Undir nefndarálitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Diljá Mist Einarsdóttir, formaður utanríkismálanefndar, Jakob Frímann Magnússon, Jón Gunnarsson og Magnús Árni Skjöld Magnússon. Þá lýsir Gísli Rafn Ólafsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, sig samþykkan álitinu.