Áhrif náttúruhamfara á innviði á Suðurnesjum, munnleg skýrsla forsætisráðherra.
Frú forseti. Það er svolítið ruglingslegt fyrir okkur innfædda Suðurnesjamenn þegar Reykjanesskaginn er kallaður Reykjanes. Mér brá töluvert þegar tilkynnt var um gosið 2021 og fullyrt var að gos væri hafið á Reykjanesi. Sprungan á Reykjanesi gengur út í sjó og þar getur verið von á allt annars konar gosi, sem hefur m.a. áhrif á flug með öskufalli, heldur en gosi austar á Reykjanesskaganum. Það er líka ruglingslegt vegna þess að það er virkjun út á Reykjanesi sem nú er m.a. í umræðunni að koma í aukna virkni. Ég vil þess vegna biðla til fólks um að tala um Reykjanesskagann og svo bara um Reykjanes þegar verið er að tala um Reykjanesið sjálft.
Frú forseti. Það er áríðandi að stjórnvöld geri þrennt vegna jarðhræringa og eldsumbrota á Reykjanesskaganum. Í fyrsta lagi að fara yfir hvað hefði mátt gera betur til að gæta að orkuöryggi á Suðurnesjum og fara yfir þær ábendingar sem fram hafa komið frá sérfræðingum og þeim sem þekkingu hafa. Það þarf einnig að svara því hvers vegna ekki var farið eftir sumu af því sem lagt var til í forvarnaskyni og síðast en ekki síst að læra af reynslunni. Í öðru lagi að nýta tímann núna á milli gosa til að gera það sem hægt er til að tryggja íbúum á Suðurnesjum heitt og kalt vatn og rafmagn eins og hægt er ef illa skyldi fara í næsta gosi sem sennilega er ekki langt undan. Í þriðja lagi þarf að gera áætlanir til framtíðar með allt höfuðborgarsvæðið undir.
Forseti. Hvaða ábendingar voru komnar til stjórnvalda strax eftir 10. nóvember í fyrra þegar kvika streymdi undir Grindavíkurbæ með tilheyrandi afleiðingum? Í Heimildinni á dögunum var farið yfir nokkur þau atriði. Þar segir m.a. að allt frá því að Grindavík var rýmd 10. nóvember hafi verið varað við því af Orkustofnun, HS Orku og HS Veitum að sú staða gæti komið upp að íbúar Suðurnesja yrðu heitavatnslausir. Þann 11. nóvember sendi Orkustofnun minnisblað til ríkisstjórnar Íslands og almannavarna sem unnin var í samvinnu við HS Veitur og HS Orku og Verkís sem hafði unnið að greiningu og mati á aðgerðum sem ráðgjafi. Þar er lagt mat á búnaðarþörf fyrir hitaveitur ef versta sviðsmynd myndi rætast, sem er að orkuverið í Svartsengi yrði óstarfhæft. Í minnisblaðinu eru rakin ýmis atriði sem ég ætla ekki að fara yfir nú, enda tíminn naumur í þessari umræðu. Líkt og hæstv. forsætisráðherra fór yfir í skýrslu sinni hefur verið unnið að forvarnastarfi en það er mat sumra að ekki hafi verið brugðist við eða unnið nægilega hratt við að útfæra einhverja af þessum þáttum sem hefur verið bent á að nauðsynlegir væru. Það er mikilvægt að stjórnvöld svari þeirri gagnrýni.
Það þarf, forseti, að teikna upp sviðsmyndir af því sem hugsanlega gæti átt sér stað og senda út skýr skilaboð um hver viðbrögð verða við hverri sviðsmynd og reyna með því að gefa skýrari upplýsingar til að koma í veg fyrir að það verði upplýsingaóreiða á svæðinu, sem ég t.d. sjálf varð svolítið vör við núna um helgina. Sviðsmyndin sem fólk taldi næstversta raungerðist þegar um 13.000 heimila á Suðurnesjum urðu heitavatnslaus. Þegar hitaveita bregst þá geta hús skemmst hratt. Sem betur fer tókst að koma hita á hratt og vel og fyrr en gert var ráð fyrir, þökk sé færum og samstarfsfúsum fagmönnum. Skemmdir hafa ekki enn verið kortlagðar, sum hús eru komin með hita en önnur ekki. Húsið mitt í Suðurnesjabæ var kalt í morgun en vonandi hitnar það þegar líður á daginn.
Enn streymir kvika upp undir Svartsengi og það mun gjósa aftur fyrr en seinna. Hvar kvikan ryður sér braut vitum við ekki en við vitum að það skiptir máli fyrir búsetuöryggi á Suðurnesjum að lagnir og orkuver séu varin eins og hægt er. Nú þegar allir þurfa að láta hendur standa fram úr ermum og ganga fumlaust til verka þurfa stjórnvöld að vera með skýra og trúverðuga áætlun og nýta tímann vel næstu daga. Ég ítreka aftur, forseti, að það skiptir máli að gefa út skýrar upplýsingar til íbúa um hvað gæti gerst og hvað taki við ef ákveðnar sviðsmyndir verða að raunveruleika.
Forseti. Það er einnig mikilvægt að hefja vinnu sem fyrst að framtíðarskipulagi fyrir höfuðborgarsvæðið þar sem almannavarnir eru einnig teknar með í reikninginn. Það þarf að hanna varnargarða, svo sem við Hafnarfjörð, til að verja byggð og gera áætlun um hvar finna megi efni og vinnuvélar til að ganga í það verk ef eldgos færa sig til austurs líkt og búast má við í ljósi sögunnar. Einnig þarf að horfast í augu við þann vanda sem getur skapast af því að lykilfyrirtæki séu í einkaeigu líkt og HS Orka og HS Veitur og hvernig megi takast á við þær áskoranir. Vegna athugasemda sem hv. þm. Guðbrandur Einarsson setti fram hér áðan í andsvari við hæstv. forsætisráðherra þá er það þannig að þó að Reykjanesbær eigi 51% í HS Veitum þá hafa þeir eigendur sem eiga 49% á móti bænum neitunarvald um málefni fyrirtækisins.