154. löggjafarþing — 72. fundur,  13. feb. 2024.

Áhrif náttúruhamfara á innviði á Suðurnesjum, munnleg skýrsla forsætisráðherra.

[15:19]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir skýrslugjöfina og þessa umræðu hér í dag um áhrif á innviði á Reykjanesskaganum. Þau áhrif eru mikil og hafa áhrif á marga þannig að það er af mörgu að taka. Ég hef sagt í gegnum þessa atburði að það er erfitt að lýsa öflum og kröftum náttúrunnar en það er líka orðið nokkuð erfitt að lýsa stærð og fjölbreytileika þessa verkefnis sem við höfum fengið í hendur. En það er samhugur meðal þjóðarinnar. Það er samtakamáttur meðal íbúa Suðurnesja allra og í Grindavík og vilja til að takast á við þetta með æðruleysi og af virðingu við náttúruna og þannig trúi ég að við komumst í gegnum þetta krefjandi verkefni.

Orðið fyrirhyggja hefur verið rætt mikið undanfarið og ég held nú að hún hafi verið til staðar þó að það hafi verið svekkjandi að sjá að viðbragðsaðgerðirnar heppnuðust næstum því. Lagnir inn til Grindavíkur voru einhverju leyti komnar niður og vantaði ekki mikið upp á að fergja þær betur til þess að þær myndu halda. Njarðvíkurlögnin var komin niður, vantaði kannski eitthvert smotterí upp á til þess að hún hefði haldið og viðbragðið hefði virkað. Það var verkfræðilegt undur, eins og ég hef sagt hér áður, að takast á svo skömmum tíma að setja nýja lögn af stað en það hvernig samfélagið brást við þannig að rafmagnsinnviðir og annað brunnu ekki yfir var líka samfélagslegt undur. Ég hugsa að það hafi verið viss fyrirhyggja sem skapaði það að þetta tókst. Það var búið að undirbúa hlutina og pæla í þeim og hugsa þá og það var búið að safna öflugu liði til að framkvæma þá þannig að ég hugsa nú að fyrirhyggjan hafi verið til staðar.

Ég held að við græðum ekki mikið á því, upp á innviðina, að hugsa mikið um ef og hefði og hvað hefði verið hægt að gera betur. Nú þurfum við að mínu viti að fara og hugsa: Hvernig ætlum við að læra að lifa með náttúrunni? Það þurfum við að gera á Íslandi, höfum gert það og kunnum það vel á mörgum stöðum. Núna er bara kominn upp sá taktur á Reykjanesskaganum öllum sem við þurfum að læra á, taktur náttúrunnar. Því held ég að við verðum að breyta úr viðbragðsfasa yfir í aðlögunarfasa, bregðast frekar við og aðlaga okkur þessum nýju aðstæðum og gefa fólki og fyrirtækjum tækifæri til þess. Setja ekki of mikið í fang almannavarna sem hafa næg verkefni á sínum höndum og víða um land og aldrei ná þau að hvíla sig eftir síðasta atburð því að sá næsti er kominn. Við verðum að passa okkur á því að treysta ekki um of á almannavarnir og ætlast til of mikils af þeim heldur verðum við að passa okkur á að verkefnin verði áfram hjá þeim sem þekkja best til á hverjum tíma og vilja aðlaga sig og starfa og búa á ákveðnum stöðum. Það verður að gefa þeim visst svigrúm og frelsi og leyfa þeim að taka ábyrgð á því sem er að gerast. Ég held að það sé mikilvægasta og stærsta verkefnið fram undan, hvernig við ætluðum að læra að lifa með þessu og aðlaga okkur þessum aðstæðum sem eru komnar upp á Reykjanesskaganum öllum.

Nú eru þrír mánuðir síðan Grindavíkurbær var rýmdur. Það er stýrt aðgengi að bænum sem fer annaðhvort eftir stöðu innviða eða þeirri náttúruvá sem er yfirvofandi. Ég held að það sé svolítið langt gengið að hafa atvinnustarfsemina og heilt bæjarfélag algerlega lokað og aðgangsstýrt eingöngu vegna stöðu innviða. Við verðum að leyfa þeim sem geta og vilja að komast inn og bjarga verðmætum, halda atvinnustarfsemi gangandi og bregðast við. Það er gríðarleg þekking í heilu bæjarfélagi, samfélagið hefur byggt upp þetta bæjarfélag, byggt upp alla innviðina, þau þekkja náttúruna og þekkja umhverfið, þekkja innviðina mjög vel og ættu því að vera best til þess fallin, í samvinnu og með aðstoð stjórnvalda og í sumum tilvikum almannavarna, Veðurstofunnar og annarra stofnana, til þess að takast á við þetta ástand. Ég tel það vera gríðarlega mikilvægt af því að staðan er sú að með þeim innviðum sem við höfum á Reykjanesskaganum erum við að skapa gríðarleg verðmæti fyrir þjóðina alla. Þar er gríðarleg verðmætasköpun sem er stórt innlegg í hagsæld þessarar þjóðar. Og þó að þetta sé kostnaðarsamt og mikil áskorun núna og tekur sinn toll þá er mikilvægt að við gerum allt til þess að verja þessa innviði, endurreisa þessa innviði, halda þeim gangandi. Þó að náttúran sé við völd núna þá megum við ekki gefast upp. Við þurfum að gera allt sem við getum og nýta okkar þekkingu og reynslu sem við höfum fengið núna síðastliðin fjögur ár til þess að halda áfram, aðlagast þessu frekar og nýta áfram þau verðmæti og þær aðstæður sem eru á svæðinu til verðmætasköpunar fyrir þessa þjóð og til að viðhalda því öfluga og góða samfélagi sem þarna hefur byggst upp og mótast. Við eigum að leyfa samfélaginu að takast á við þessar áskoranir náttúrunnar. Náttúran gefur og náttúran tekur og það er ekkert lítið sem hún hefur gefið á þessu svæði, bara eina hagkvæmustu og bestu hitaveitu landsins. Það er nú ekkert lítið. Það er líka orkuöflun þarna. Þarna er eitt mesta magn ferskvatns á Íslandi og ein flottasta náttúran á Íslandi, stærsti ferðamannastaðurinn, þarna eru fiskimiðin og stærsta löndunarhöfnin og annað slíkt. Náttúran er að gefa okkur gríðarlega mikið þarna þannig að við þurfum að fyrirgefa henni þessa valdatöku núna um tíma. En við þurfum að læra að lifa við þá valdatöku og ég held að það gerist best með því að við leyfum því samfélagi sem hefur lifað og hrærst með þessari náttúru og byggt þarna upp innviði að koma af krafti inn núna og sérstaklega í Grindavík. Leyfa atvinnulífinu að hefja þar starfsemi, leyfa okkur að bregðast við, aðlaga okkur þessu í samvinnu við yfirvöld með upplýsingagjöf, öryggiskröfum og því öllu saman. Þá munum við komast á betri hátt í gegnum þetta. Þá verður tjónið af náttúruvánni minna, samfélagstjónið verður minna, allir sem vilja hafa þá hlutverk við að takast á við þetta. Ég held að þannig munum við öll komast betur í gegnum þetta.

Það er oft umdeilt hvort það eigi að vera að verja t.d. hús sem er verið að kaupa upp og sagt: Skemmdirnar eru svo miklar, af hverju eigum við að setja pening í varnir og það allt? Þá skulum við ekki gleyma því að það eru ómetanlega miklir fjármunir þarna undir sem verið er að verja með varnargörðum og öðrum viðbúnaði okkar. En af því að hér er talað um eitthvert skeið sé hafið og þetta fari að hafa áhrif á fleiri stöðum — þó að ekki væri nema bara til að fá reynsluna og þekkinguna og til að prófa þetta sem hjálpar okkur þá á öðrum stöðum þá er það þess virði að gera þetta. Þannig að ég segi: Við skulum vera bjartsýn. Við skulum takast á við þetta saman og hleypa samfélaginu af stað þarna inn til að aðlagast þessu og draga úr neyðarviðbragðinu og spara það til þeirra verka sem bíða og virðist ekkert vera lát á þessi misserin.