154. löggjafarþing — 72. fundur,  13. feb. 2024.

Áhrif náttúruhamfara á innviði á Suðurnesjum, munnleg skýrsla forsætisráðherra.

[15:29]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Við sem búum á Suðurnesjum erum endalaust þakklát því galvaska liði sem tókst að koma aftur á heitu vatni langt á undan áætlun. Það sýndi sig hversu miklu er hægt að áorka þegar allir vinna saman að sama markmiði. Mig langar líka að þakka öllum hinum sem komu að því verkefni að halda á okkur hita, þeim sem sáu um að dreifa til okkar ofnum, þeim sem lánuðu ofna, galvaskri píparasveit sem var í því að aðstoða við það þegar vatnið komi aftur á, fullt af fólki á bak við tjöldin sem vann mikið verk. Við allt þetta fólk stöndum við í mikilli þakkarskuld.

Á neyðarstundu er oft auðveldara að taka ákvarðanir því að áhrif áfallsins eru svo augljós í hugum allra. 13.000 heimili og 30.000 íbúar án hita um miðjan vetur er ansi mikil hvatning til þess að láta ekkert stoppa sig í að leysa verkefnið. Það er einmitt þannig í þessari löngu aðgerð sem er búin að standa í tæp fjögur ár að ákvarðanir á neyðarstundu hafa oftast verið mjög góðar, enda hefur verið hlustað á sérfræðingana sem benda á hvað þurfi að gera.

Hins vegar þegar hættan er aðeins fjarlægri virðist vera mun erfiðara að taka ákvarðanir. Varnargarðarnir í kringum Svartsengi og Grindavík voru erfiðar ákvarðanir sem hefði þurft að taka fyrr, en þær hafa samt þegar sannað gildi sitt. Þau sem fara með stjórnina eru ávallt hrædd við að taka ákvarðanir um kostnaðarsamar forvarnaaðgerðir af hræðslu við að vera gagnrýnd fyrir að fara í óþarfaaðgerðir ef ekkert gerist. En þau átta sig sjaldnast á því að það að taka ekki ákvörðun um forvarnaaðgerðir mun leiða af sér mun verri niðurstöðu. Það er alltaf miklu verra að bregðast við of seint. Kostnaðurinn við aðgerðaleysið mun líka vera margfaldur á við kostnaðinn við forvarnirnar, a.m.k. sexfaldur samkvæmt skýrslu sem unnin var fyrir Alþjóðabankann.

Minnisblað sem lagt var fram í ríkisstjórn í nóvember lagði áherslu á það að farið væri í að smíða tengistykki svo hægt væri að tengja olíu- eða rafmagnskatla sem framleiða heitt vatn inn á hitaveitukerfið í Fitjum. Slík smíði tekur allt að þrjá mánuði, en því miður strandar á ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að hefja smíðina. Fengið var fjármagn úr Orkusjóði til að hefja leit að lághitaholum sem hægt væri að nota allt frá 60–80° heitt vatn úr í neyð. Það er þó vert að hafa í huga að sérfræðingar segja að þetta geti tekið allt að hálft ár að klára. Langtímalausnin er sú að hefja einnig framleiðslu á heitu vatni í Reykjanesvirkjun en það er framkvæmd sem mun kosta allt að 10 milljarða og alls ekki víst að einkafyrirtæki eins og HS Orka sé tilbúið að fara í slíka fjárfestingu. Þá vaknar upp sú spurning hvort nauðsynlegt sé að þrýsta á forgangsröðun verkefna eins og þessara með lagasetningu.

Jarðfræðingar segja að við getum búist við því að það gjósi aftur á þessu svæði, jafnvel í byrjun næsta mánaðar. Það er alls kostar óvíst hvort sú lögn sem lögð var um helgina sleppi. Sama gildir um Svartsengislínu sem rétt slapp í þetta skiptið. Þá er mikilvægt fyrir okkur að muna að versta sviðsmyndin, eldgos í Svartsengi sjálfu, er enn möguleiki, þó örlítið minni, sem við verðum að búa okkur undir.

Við lærðum margt af þessum atburði. Nú er mikilvægt að sá lærdómur leiði til þess að við förum í þær aðgerðir að tryggja heitt og kalt vatn ásamt raforku til okkar sem búum á Suðurnesjum. Það er mikilvægt að ákvarðanir séu teknar hratt og örugglega jafnvel þótt búið sé að lækka niður í hættustig úr neyðarstigi. Það er algerlega ólíðandi að þessari ríkisstjórn takist aldrei að fara í mikilvægar aðgerðir nema búið sé að lýsa yfir neyðarstigi. Það þarf að hefja vinnu í þágu forvarna strax.

Við þurfum einnig að draga þann lærdóm af þessum atburðum að við þurfum að fjárfesta í krítískum innviðum úti um allt land vegna þess við erum land þar sem náttúran hefur völdin, óháð því hver er í ríkisstjórn. Við hér á Alþingi höfum staðið þétt bak við Grindvíkinga í þeirra hamförum. Nú er kominn tími til þess að við gerum hið sama fyrir íbúa Suðurnesja. Ef ríkisstjórnin er orðin svo óstarfhæf vegna innbyrðis átaka að þau geta ekki lengur tekið ákvarðanir í þágu íbúa í neyð þá er kominn tími til að þau viðurkenni vanmátt sinn og leyfi öðrum að stjórna þessari mikilvægu vinnu sem fram undan er. Við þurfum ekki þessa ríkisstjórn til þess.