154. löggjafarþing — 72. fundur,  13. feb. 2024.

Áhrif náttúruhamfara á innviði á Suðurnesjum, munnleg skýrsla forsætisráðherra.

[15:42]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Að morgni fimmtudagsins síðasta lagði ég af stað heiman frá mér í Reykjanesbæ um sjöleytið að morgni til og upplifði strax eldhafið sem við blasti frá gosinu. Það vakti óneitanlega ugg að horfa á þetta sjónarspil og um leið vangaveltur um hverjar afleiðingarnar gætu orðið fyrir eignir Grindvíkinga og fyrir Suðurnesin í heild sinni. Ég róaðist aðeins á leiðinni við að hlusta á sérfræðingana í útvarpinu; gosið var á besta stað norðan megin við vatnaskilin og hraunið myndi eflaust renna til norðurs og valda litlum skaða. Annað kom hins vegar í ljós þegar hluti af hrauninu tók að renna til vesturs í átt að Grindavíkurvegi á miklu meiri hraða en nokkur hafði gert ráð fyrir. Svo fór að hitaveitulögnin sem liggur frá orkuverinu og í tankana í Njarðvík fór undir hraun og skemmdist. Við tóku heldur óskemmtilegir dagar fyrir okkur sem búum þarna suður frá, ekkert heitt vatn til að hita húsin né heldur rafmagn sem fylgdi álagi við að hita húsin með ofnum sem gengu fyrir rafmagni. Það þykir hafa gengið kraftaverki næst að tekist hafi að koma hita á húsin á skaganum á nýjan leik, þökk sé mikilli og fórnfúsri vinnu þeirra sem lögðu nótt við nýtan dag til að það mætti takast.

Staðan í Grindavík hefur legið nokkuð ljós fyrir síðan í nóvember en þessir atburðir setja stöðuna í alveg nýtt samhengi. Gosið sem flestir töldu að væri það hættuminnsta af þeim gosum sem orðið hafa við Svartsengi reyndist valda miklum skaða sem kallar á að staldrað verði við og hlutirnir hugsaðir upp á nýtt. Endalaust er verið að ræða innviði og þá hvort innviðir séu nógu sterkir eða hreinlega fyrir hendi. Ekkert lát virðist vera á þessum atburði og hafa sérfræðingar nú sannreynt að landris sé hafið að nýju og gos sé hugsanlegt aftur innan fárra vikna. Hvað ætlum við að gera ef hraunið tekur að renna í átt að Grindavíkurvegi á nýjan leik? Verðum við nægjanlega vel búin undir það? Getum við með einhverjum hætti brugðist við þessari stöðu á þeim skamma tíma sem við höfum fram að næsta gosi til að koma í veg fyrir að Suðurnesin verði öll hita- og rafmagnslaus á nýjan leik? Verður hægt að ýta upp einhvers konar leiðigarði til að koma í veg fyrir að hraun renni í átt að Grindavíkurvegi á þessum kafla og koma þá í veg fyrir skemmdir á lögninni á nýjan leik?

Suðurnesin hafa algjörlega verið háð orkuverinu í Svartsengi allt frá stofnun Hitaveitu Suðurnesja eða í allt að 50 ár. Nú er veruleikinn hins vegar annar og við honum þarf að bregðast. Það getur ekki gengið að 30.000 manna byggð fái ekki grunnþjónustu sem er svo nauðsynleg, og þá er ég að tala um heitt og kalt vatn og rafmagn. Nú er verið að leita leiða til að virkja lághitasvæði í nágrenni Njarðvíkur sem hægt væri að styðjast við ef áfall af svipuðum toga ríður yfir. Það mun hins vegar taka tíma að koma slíkri lausn í gagnið og þangað til má reikna með að óvissan sem þessi eldsumbrot eru að valda haldi áfram.

Það hefur einnig vakið athygli margra að dreifikerfi rafmagns í sveitarfélögunum sé þannig að það ráði ekki við það að settir séu í gang nokkrir rafmagnsofnar þegar atburður eins og þessi ríður yfir. Það hlýtur að kalla á heildarendurskoðun á kerfinu. HS Veitur hafa haft einokun á dreifingu orku á svæðinu og íbúar hljóta að krefjast þess að úr þessu verði bætt. Það mun auðvitað hafa talsverð útgjöld í för með sér en það verður svo að vera.

Þá hafa margir velt upp þeirri spurningu hvort rétt sé að grunninnviðir eins og orkuöflun séu í höndum einkaaðila. HS Orka var á sínum tíma hluti af Hitaveitu Suðurnesja en í mars 2007 auglýsti ríkið 15,2% hlut sinn í fyrirtækinu til sölu. Kaupandi var á sínum tíma Geysir Green sem var orkuútrásarfyrirtæki í eigu FL Group, Glitnis og Mannvits. Þessi sala varð á vakt Samfylkingarinnar sem stjórnaði á sínum tíma ráðuneyti iðnaðar. Í framhaldinu tóku sveitarfélögin á Suðurnesjum ásamt Hafnarfirði að selja sig út úr hitaveitunni og endanleg niðurstaða varð síðan sú að skipta fyrirtækinu upp í HS Orku, sem var alfarið í eigu einkaaðila, og HS Veitur, sem er og hefur verið í meirihlutaeigu Reykjanesbæjar en tók einnig þátt í sölunni á HS Orku. Eina andstaðan við þessa sölu kom frá minni hluta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar (Forseti hringir.) en annars staðar var þessi aðgerð samþykkt þegjandi og hljóðalaust. Sagan er skráð og ágætt að hafa það í huga (Forseti hringir.) þegar krafan um að innviðir skuli vera í opinberri eigu verður hávær.