154. löggjafarþing — 72. fundur,  13. feb. 2024.

Áhrif náttúruhamfara á innviði á Suðurnesjum, munnleg skýrsla forsætisráðherra.

[15:47]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Frú forseti. Ég vil nú að byrja á því eins og önnur hér, aðrir hv. þingmenn sem hafa talað, að þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir þessa skýrslu og þessa umræðu hér sem er um margt gagnleg en líka þörf í ljósi þeirrar stöðu sem við höfum öll horft upp á, einhver hér inni þurft að þola og upplifa á eigin skinni en ekki við öll hin sem höfum horft upp á þetta í fjölmiðlum að undanförnu og undanfarin ár raunar. Ég vil líka taka undir með öðrum hv. þingmönnum sem hafa dregið fram hið augljósa fyrir okkur sem höfum verið að horfa og það er þetta sem hæstv. forsætisráðherra orðaði í færslu á fésbókinni í gær, þessi viðnámsþróttur samfélagsins sem blasir við okkur, þrautseigja og útsjónarsemi þeirra viðbragðsaðila sem hafa brugðist hratt og örugglega við á svæðinu. Þetta er aðdáunarvert að sjá. Þarna var unnið þrekvirki, eins og fleiri hafa komið inn á, við að koma heitu vatni á til allt að 10% þjóðarinnar, áskorun sem getur ekki verið auðvelt að vinna undir viðlíka pressu eins og unnið var undir en tókst með miklum ágætum. Og aftur endurtek ég, virðulegi forseti, að það er aðdáunarvert að fylgjast með þessu.

En þetta er ekki eitthvað, eins og við gerum okkur grein fyrir og höfum verið að ræða hér, sem er að gerast út í bláinn, eins og sagt er, heldur höfum við verið að fylgjast með þessari þróun atburða á undanförnum árum og þar höfum við þurft að reiða okkur á læsi og getu okkar færasta vísindafólks í að skilja og reyna að átta sig á hreyfingu hlutanna og hvernig þetta mun allt saman leggjast. Vísindafólkið getur ekki sagt endanlega til um niðurstöðuna þó að það sé ákveðinn freistnivandi fjölmiðla að spyrja þau iðulega að því hvernig þetta gerist og hvenær og á hvaða tímapunkti, en alltaf reyna þau að svara því besta sem þau vita á hverjum tíma. Það er alger grunnforsenda allrar ákvarðanatöku þegar við reynum að bregðast við. Þetta eru eins og hæstv. forsætisráðherra kom inn á áskoranir samfélagsins alls. Við höfum auðvitað staðið frammi fyrir alls kyns áskorunum þegar kemur að náttúrunni og náttúruvá á minni skala e.t.v., en þó stórum skala hverju sinni. Á undanförnum árum höfum við horft upp á hvern náttúruviðburðinn á fætur öðrum; ef það eru ekki skriðuföll þá er það snjóflóð, ef það er ekki óveður þá er það eldgos. Og yfir og allt um kring gerum við okkur fulla grein fyrir því án þess að sjá fyrir endanlegan enda á því að loftslagsváin ein og sér mun skapa alls kyns aðstæður sem verða okkur krefjandi og við þurfum að mæta með getu, viðnámsþrótti, þreki og kannski þegar upp er staðið góðum vilja. Það er eitthvað sem við höfum ekkert endilega mörg hér komið inn á, mikilvægi samhugarins í samfélaginu þegar eitthvað bjátar á.

Ég hjó eftir því í orðræðu fulltrúa almannavarnadeildar þegar var verið að senda skilaboð í gegnum ríkisfjölmiðilinn okkar og fleiri fjölmiðla um mikilvægi þess að íbúar á Reykjanesskaganum myndu huga að nágrannanum í leiðinni. Þetta er akkúrat svona sem við komumst í gegnum verkefni, þ.e. með því að standa saman og hugsa ekki bara hvert um sig fyrir okkur sjálf heldur reyna að leggja okkar af mörkum til að tryggja að öll sem skapa og skipa þetta samfélag með okkur séu meðvituð um stöðuna og fái og njóti þeirrar aðstoðar, því að öll getum við eitthvað lagt af mörkum.

Að endingu vil ég draga fram, virðulegi forseti, af því að ég er búinn að lista þær hér og einhverjir hafa komið inn á þessar áskoranir sem við höfum staðið frammi fyrir sem samfélag á undanförnum árum. Hæstv. innviðaráðherra veltir því upp hér hvort við höfum hugsanlega sofnað á verðinum. Ég vil meina að viðbrögð stjórnvalda á undanförnum árum við þeim viðburðum og þeim atburðum sem við höfum staðið frammi fyrir hafi líka verið fordæmalaus og hröð um margt. Hér getum við eðli málsins samkvæmt tekist á um einstaka hluti, einstakar tengingar eða einstaka stykki sem ekki er byrjað að smíða en það verður aldrei sagt annað að mínu mati um viðbrögð stjórnvalda við þeim náttúruváráskorunum sem við höfum staðið frammi fyrir en að þau hafi verið afdráttarlaus. Samstaða okkar hér á þinginu hvað varðar mál er lúta að sér í lagi þeim verkefnum sem samfélagið í Grindavík hefur staðið frammi fyrir hefur verið alger í að ná árangri og vinna hratt og örugglega að því að leysa mál. Ég treysti því, virðulegi forseti, að við höldum því áfram í góðri samvinnu og góðri samstöðu fyrir fólkið sem sannarlega stendur í miklu meiri raun heldur en við hér við að reyna að koma hlutunum frá okkur hratt og örugglega.