154. löggjafarþing — 72. fundur,  13. feb. 2024.

Áhrif náttúruhamfara á innviði á Suðurnesjum, munnleg skýrsla forsætisráðherra.

[15:53]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Eins og aðrir þingmenn tel ég rétt að byrja á að þakka þeim mikla fjölda fólks sem hefur komið að því að gæta öryggis og bjarga verðmætum og endurbyggja innviði af alveg ótrúlegum krafti og hugkvæmni frá því að hamfarir hófust og ekki hvað síst auðvitað síðustu daga, eins og við höfum fylgst með jafnt og þétt í fjölmiðlum. Ég þakka einnig hæstv. forsætisráðherra fyrir þessa skýrslu sem kannski eðli máls samkvæmt rekur fyrst og fremst atburði liðinna vikna og mánaða. Þó er ástæða að mínu mati til að nota tækifærið og tilefnið til að ræða framhaldið, velta fyrir okkur hvað við getum lært af þessari reynslu en búa okkur undir framhaldið og ræða það m.a. í þessari umræðu.

Nokkrir hafa nefnt mikilvægi þess að draga úr óvissu eins og kostur er og þetta vil ég leggja alveg sérstaka áherslu á, að stjórnvöld dragi upp sviðsmyndir, ólíkar sviðsmyndir og hanni og undirbúi ráðstafanir í samræmi við það. Þessi umræða ætti að vera opinber að sem mestu leyti, þ.e. að fólk geti gert sér grein fyrir og vitað hver viðbrögðin verða, hvað gerist ef ákveðnir atburðir eiga sér stað. Annars vegar dregur það úr óvissu fólks, það sýnir að það sé til staðar plan, það sé áætlun og það sé verið að vinna að því, en hitt er að það leyfir líka gagnrýni. Það býður upp á gagnrýni og jafnvel og kannski alveg sérstaklega þegar verið er að fást við erfið mál þá þurfum við að leyfa gagnrýni og umræðu um bestu leiðirnar. Þannig geti það þá legið fyrir í tæka tíð að málin hafi verið rædd, einhverjir sem kannski voru með betri hugmyndir hafi fengið að koma þeim á framfæri og áætlanir verið lagaðar að því. Ég ætla þingmönnum það ekki í svona máli að festast í því sem þeir töldu fyrst að væri rétt ef betri upplýsingar koma svo í ljós. Þess vegna tel ég að undirbúningur eigi m.a. að miða að því að hleypa fólki að og leyfa umræðu og hugmyndir frekar en að það gerist á lokuðum stöðum í lokuðum hópum.

Við munum líka þurfa að forgangsraða í samræmi við aðstæður, í samræmi við þessa óvæntu og miklu atburði. Ég hef áður nefnt það hér að við höfum kannski ekki verið alveg nógu vel í stakk búin til að takast á við svona áföll, m.a. vegna þess hvernig haldið hefur verið á ríkisfjármálunum, m.a. vegna þess hvernig stjórnleysi hefur ríkt á ákveðnum sviðum í hælisleitendamálum, sem hefur auðvitað óhjákvæmilega áhrif á þetta, í heilbrigðismálunum, allt tengist þetta og ef okkur er alvara með það að ætla að forgangsraða núna í því að takast á við þetta verkefni er ekki um leið hægt að viðhalda stjórnleysi á öðrum sviðum. Þetta er því áminning til stjórnvalda um mikilvægi þess að koma skikki á þá málaflokka og þau svið þar sem stjórnleysi eða óráðsía hefur verið ríkjandi.

Við þurfum einnig að passa upp á að þegar við ráðumst vonandi í þau verkefni sem nauðsynleg eru þá muni ekki kerfistafir koma í veg fyrir að hægt sé að ráðast í framkvæmdir eins hratt og vel og á þarf að halda. Það þarf t.d. og hefur legið fyrir áður en þessir atburðir hófust allir að við þurfum að framleiða meiri orku. Hvers vegna hefur það ekki gengið eftir? Hvers vegna hefur það ekki tekist? Það er búið að hanna — að mjög verulegu leyti er það hönnun, að öðru leyti kannski bara sjálfsprottið — kerfi sem gerir okkur oft og tíðum erfitt að bregðast við í samræmi við tilefnið og í tæka tíð. Það má ekki verða til þess að við náum ekki að gera þær ráðstafanir sem á þarf að halda.

Að lokum, frú forseti, vil ég nefna atriði sem er gríðarlega mikilvægt núna þegar við förum í það að leysa úr vanda Suðurnesjamanna og auðvitað Grindvíkinga alveg sérstaklega. Það er að gætt verði sanngirni og jafnræðis. Ríkisstjórnin hefur kynnt áform um uppkaup eigna og töluverðar athugasemdir borist við þá aðferð sem þar var lagt upp með. Nú skilst mér að einhver bið verði á að við ræðum það mál hér í þinginu. Vonandi er það vegna þess að til standi að taka tillit til þessara athugasemda og þá hlýtur markmiðið að vera það að gæta sanngirni og bæta fólki það tjón sem það hefur orðið fyrir eða kann að verða fyrir á sanngjarnan hátt.

Að öðru leyti lýsi ég ánægju með það að þingið skuli standa saman áfram um úrlausn þessara mála en samstaða þýðir ekki að við eigum ekki að gagnrýna og að við eigum ekki að rökræða lausnirnar og ég vona að við nálgumst það þannig áfram.