Áhrif náttúruhamfara á innviði á Suðurnesjum, munnleg skýrsla forsætisráðherra.
Frú forseti. Fyrir tæpum þremur árum hófst eldgosatímabil á Reykjanesskaga með gosi í Fagradalsfjalli eftir þriggja vikna stöðuga jarðskjálftahrinu sem hafði raunar staðið yfir sleitulaust frá áramótunum 2019. Síðan fylgdu tvö gos sem voru fjarri byggð og hvorki byggð né innviðum á Reykjanesskaga stafaði hætta af þeim en vísindamenn voru þá strax sammála um að nýtt skeið væri hafið á Reykjanesskaga, gostímabil og óróatímabil sem gæti staðið yfir í áratugi. Eftir mikla jarðskjálftahrinu í haust var ákveðið að rýma Grindavík þar sem óttast var að það gæti farið að gjósa inni í bænum. Þrátt fyrir að það gerðist ekki var eyðileggingin mjög mikil, m.a. vegna sprungu og misgengis. Fjórða gosið hófst svo með hvelli mánuðum síðar og þá rann hraun yfir byggð í Grindavík. Nú í síðustu viku rann hraun svo yfir Grindavíkurveg með þeim afleiðingum að hitaveituæð fór í sundur og við þekkjum afleiðingar þess.
Við höfum auðvitað fylgst af aðdáun með aðgerðum á Reykjanesskaga um helgina og íbúar á svæðinu hafa sýnt eindæma æðruleysi í mjög erfiðum aðstæðum og fjöldinn allur af framúrskarandi fagmönnum og -fólki, -konum, hefur unnið þrekvirki. Það ætti í sjálfu sér ekki að vera þarft að rekja þessa atburði hér en það er engu að síður gert vegna þess að það skiptir máli að muna að þetta átti sér talsverðan aðdraganda. Vissulega munum við þurfa að horfast í augu við óvissu í talsverðan tíma en við sitjum líka uppi með margar spurningar sem verður að svara, t.d.: Til hvaða ráðstafana greip HS Orka og stjórnvöld til þegar eldgosin hófust í Fagradalsfjalli, þegar ljóst var að Reykjanesskagi allur væri að vakna; tímabil sem gæti staðið yfir í áratugi? Það hefur komið fram að heitavatnsæð sem flutti heitt vatn frá Svartsengi hafi verið 50 ára gömul og hún hafi verið orðin léleg fyrir síðustu aldamót. Þá hefur verið gagnrýnt að ekki hafi verið farið strax í að leggja lagnirnar í jörðu þegar ljóst var að innviðir við Svartsengi væru í hættu. Nú hafa líka heyrst fréttir af því að kaldavatnslögn sem leiðir vatn að Svartsengi frá Lágum hafi einnig farið undir hraun, rör sem eru nauðsynleg lífæð fyrir virkjunina.
Landið heldur áfram að rísa og það eru allar líkur á öðru gosi og fleiri gosum. Við vitum ekkert hver atburðarásin er og hvað hún stendur lengi. Þó svo að varnargarðar muni vonandi verja virkjunina ef það gýs aftur utan þeirra þá verðum við að horfast í augu við framtíð orkuvers sem er á mjög hættulegum stað. Því spyr ég hvort það hafi verið tekin ákvörðun um að ráðast í nýjar aðgerðir til að tryggja Reykjanesskaga heitt vatn og rafmagn með öðrum hætti og þá hvaða.
Þótt við höfum ekki stjórn á jarðhræringunum sjálfum þá höfum við alltaf stjórn á viðbrögðum okkar og getum sem betur fer gert ráðstafanir, oft langt fram í tíma. Ég spyr einfaldlega hæstv. ráðherra hvort hún telji að ráðstafanir sem gerðar voru þegar það var ljóst í hvað stefndi hafi verið nægjanlegar til að verja innviði. Ég velti einnig fyrir mér skiptingu á fjárhagslegum kostnaði við uppbyggingu innviða á Reykjanesskaga nú í ljósi þess að HS Orka er fyrirtæki í einkaeigu. Hver ber ábyrgð á þessum innviðum? Hver fjármagnar þær aðgerðir sem nú eru í gangi og hvað er fram undan? Hver er kostnaðarskiptingin? Borgar HS Orka allan brúsann? Og hvernig er þá tryggt að orkureikningar hjá íbúum Suðurnesja fari ekki að hækka upp úr öllu valdi, vegna þess að þessi fyrirtæki greiða sér vissulega arð þegar vel gengur?
Að lokum þurfum við að fara í vinnu við að tryggja innviði og endurskoða skipulagsáætlanir fyrir Suðurnes og raunar allt höfuðborgarsvæðið. Hvar á að byggja? Þurfum við að breyta forgangsröðun við uppbyggingu, svo dæmi séu tekin? Og þó að við þurfum fyrst og fremst að svara spurningum Grindvíkinga og gera margt til að mæta þrautum þeirra þá langar mig að taka undir með hæstv. innviðaráðherra (Forseti hringir.) sem talaði um heildarsýn. Forsætisráðherra talaði líka um heildarsýn áratugi fram í tímann. (Forseti hringir.) Á einhverjum tímapunkti þurfum við líka að skoða hvort sú skipulagsþróun sem hefur verið hér á landi síðustu 100 árin, þar sem 80% íbúa búa á afmörkuðu svæði, er skynsamleg til langrar framtíðar, (Forseti hringir.) hvaða kostir felast í því en líka hvaða hættur felast í því.