Áhrif náttúruhamfara á innviði á Suðurnesjum, munnleg skýrsla forsætisráðherra.
Frú forseti. Ég þakka fyrir þessa ágætu munnlegu skýrslu af hálfu hæstv. forsætisráðherra. Ég held að hæstv. forsætisráðherra hafi lýst þessu ágætlega í upphafsorðum sínum þegar hún sagði að þetta væri barátta náttúru og manns og við höfum svo sannarlega orðið vitni að því í þessum atburðum sem nú hafa dunið yfir um nokkurra mánaða skeið. Þetta eru sannarlega stórar áskoranir, eins og hér hefur komið fram, en að sama skapi erum við náttúrlega lánsöm að eiga þessa góðu viðbragðsaðila, almannavarnir og þá aðila sem reyna að verja þessi mannvirki og alla þá sem hafa komið að þeirri vinnu og ekki síst okkar frábæru vísindamenn sem hafa verið ótrúlega sannspáir að mínu mati um þessa atburði sem við erum að horfa upp á. Það eru gríðarlega mikil verðmæti sem felast í þeirri þekkingu sem þeir hafa verið að miðla til okkar og við sjáum að við þurfum sannarlega að bregðast við þeim fréttum að enn komi hugsanlega til með að gjósa á þessum slóðum. Þess vegna er afar mikilvægt í mínum huga, frú forseti, að við leitum allra leiða til að hafa vara-varaafl, eins og er sagt, sérstaklega í hitaveitu og einnig í raforku, að við höfum þá aðrar leiðir til að reyna að koma í veg fyrir það sem gerðist núna svo skyndilega þegar varð heitavatnslaust á öllum Suðurnesjum. Það er komin í gang heyrði ég vinna við svona hitaveituvæðingu á öðrum stöðum en Svartsengi og það var verið að tala um þetta lághitasvæði eins og á Fitjum, afar mikilvægt og gott að það eigi að fara að ráðast þar í boranir. Atvinnuveganefnd fundaði með orkumálastjóra í morgun og þar var farið yfir þessa hluti, fróðlegur og góður fundur. Þar voru teiknuð upp þessi lághitasvæði og hugsanlegt að taka heitavatnslögn frá jafnvel Hafnarfirði til að mæta þá Vogunum. Það kom mér reyndar svolítið á óvart að ég upplýsti orkumálastjóra þar um að það hefur fundist heitt vatn á Vatnsleysuströnd sem er um 65° heitt og rennur það sjálfrennandi úr borholu í tjörn og er engum til gagns. Orkumálastjóra var ekki kunnugt um að það væri vatn á þessum slóðum, en það er mikilvægt að nýta þá orku sem við höfum til staðar og ég teldi eðlilegt að þar yrði borað til að reyna að koma með varalögn til að mæta byggðinni í Vogum.
Ég held að það sé líka mikilvægt í þessu öllu saman að við höldum áfram að styrkja almannavarnir. Það eru 12 manns sem starfa hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og það er í deiglunni að endurskoða almannavarnalögin. Þetta er allt mjög mikilvægt og það var sannarlega þrekvirki unnið núna þegar lögnin fór í sundur við að koma hitanum á aftur. En við hins vegar stöndum því miður hugsanlega frammi fyrir því að þessir innviðir geti aftur orðið fyrir tjóni og þess vegna er afar mikilvægt að vera viðbúin því ef ske kynni að það myndi gerast, sem snýr kannski bara fyrst og fremst að því að við þurfum að vera undirbúin fyrir það að lifa með eldsumbrotum. Það eru fleiri þjóðir sem hafa staðið frammi fyrir því, bæði í Japan og á Ítalíu. Þetta eru ekkert óyfirstíganlegir þættir. Þetta er eitthvað sem við stöndum frammi fyrir og er veruleikinn. Ég vil lýsa ánægju minni með skjót viðbrögð og vinnubrögð þegar kemur að varnargörðum sem hafa sannað gildi sitt, svo sannarlega.
En mig langar, frú forseti, aðeins í lokin að beina orðum mínum að Grindvíkingum. Grindvíkingar hafa þurft að ganga í gegnum ótrúlega erfiðleika og ég veit að það eru margir Grindvíkingar sem bara líður ekki vel, og skiljanlega. Nú kannski fengum við smátilfinningu fyrir því, við sem búum á Suðurnesjum en ekki í Grindavík, þegar heita vatnið fór að þá var þetta orðið enn þá nær okkur, þessar náttúruhamfarir sem hafa fyrst og fremst bitnað á Grindvíkingum hingað til. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við hugsum líka aðeins um það hvort við getum ekki með einhverjum hætti veitt fyrirtækjum og almenningi rýmri aðgang að bænum en verið hefur. Það er held ég líka nauðsynlegt gagnvart t.d. atvinnulífinu sem er náttúrlega lífæð þessa samfélags og það er vissulega von um að sá dagur komi að fólk geti flutt aftur og áfram verði blómleg byggð í Grindavík. Þó að hlutirnir líti ekki vel út í dag þá vonum við svo sannarlega að það eigi eftir að breytast. Það hafa komið fram sjónarmið frá t.d. atvinnurekendum í Grindavík um að það ætti að leyfa þeim að fara með sína starfsmenn og stunda sína vinnu yfir daginn og yfirgefa svæðið að loknum vinnudegi.
Þetta allt vil ég hvetja stjórnvöld til að skoða, lögreglustjórann á Suðurnesjum, að leyfa kannski einstaklingum og fyrirtækjum sem vilja reyna að aðlaga sig þessum aðstæðum og hafa ákveðið frelsi til þess, innan ákveðinna marka náttúrlega þegar kemur að öryggiskröfum, að þær séu uppfylltar. Það er mín skoðun að við eigum að geta treyst fólki hvað það varðar. Þetta er bara mikilvægt líka sálrænt, myndi ég segja, að fólk viti að Grindavík sé ekki orðin að einhverjum draugabæ eins og sumir hafa nefnt, að þessum fyrirtækjum sem hafa vilja og getu og þar sem engar skemmdir hafa orðið eða þess háttar verði gert kleift að reyna að halda einhverri starfsemi áfram, ef þeir hafa vilja og getu til eins og ég segi. Ég held að það sé mikilvægt og hefði viljað að við myndum reyna að hafa rýmri aðgang að bænum en verið hefur. Ég taldi rétt að koma þessu á framfæri, frú forseti.
Að lokum vil ég segja að þegar við horfum á langtímasýnina þá er náttúrlega mjög mikilvægt, eins og kom fram hjá hæstv. forsætisráðherra, að vinna þetta hættumat sem verður skilað til okkar í áföngum. Það er náttúrlega afar mikilvægt í allri skipulagningu sem fram undan er og að við höfum langtímasýn um hvernig við munum reyna að mæta þessari baráttu okkar við náttúruna sem er ótrúlega öflug, eins og við sáum, þegar kemur að þessum eldsumbrotum. Auðvitað vekur það ótta hjá sumum að við séum komin inn í tímabil sem getur haft áhrif á þúsundir manna á þessu svæði en við höfum hins vegar unnið þrekvirki, myndi ég segja, þegar kemur að þessu viðbragði og allir hafa lagst á eitt í þeim efnum. Ég vil ljúka mínum orðum hér með því að þakka öllum þeim sem hafa komið að þeirri vinnu og vonandi horfum við fram á það að það verði ekki frekara tjón á innviðum. En við þurfum að vera við öllu viðbúin hvað það varðar.